Skip to main content

Leitast við að auka lífsgæði fatlaðra

Fjóla Jónsdóttir, dósent í Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarverkfræðideild

Við Verkfræði- og náttúruvísindasvið Háskóla Íslands stendur nú yfir rannsókn sem miðar að því að bæta gervihnjáliði fyrir fólk sem hefur misst fótlegg. „Fyrirtækið Össur hf., sem við erum í samstarfi við, hefur sett á markað örtölvustýrðan gervihnjálið og miðar þessi rannsókn að því að þróa þennan búnað enn frekar,“ segir Fjóla Jónsdóttir, dósent í véla- og iðnaðarverkfræði.

„Gervihnjáliðurinn inniheldur meðal annars þróaða skynjara og bremsu sem nýtir breytilega seigju í rafsegulvökva. Seigjunni er stýrt með því að auka eða minnka segulsvið sem verkar á vökvann og þannig næst fram breytileg stífni í gervihnjáliðnum. Stífninni er stýrt með örtölvu þar sem gervigreind ályktar um göngulag notandans með hjálp skynjara.“

Hefðbundinn rafsegulvökvi er olía sem í er blandað járnögnum í míkronstærð. Þegar segulsvið verkar á vökvann, mynda agnirnar keðjur og þar með breytist seigja hans. Rafsegulvökvar eru t.d. notaðir í dempara og bremsur, þar sem þessi eiginleiki, að geta stýrt seigju vökvans í rauntíma, nýtist.

Fjóla Jónsdóttir

„Rafsegulvökvi með þessa eiginleika mun bæta gervihné og gera notkun þess mögulega fyrir breiðari hóp notenda. Þetta er gríðarlega spennandi verkefni sem við erum að fást við og getur haft mikið að segja fyrir fatlaða sem þurfa á þessum búnaði að halda. Það hefur bein áhrif á lífsgæði að hnéð verði í senn sterkara og þjálla.“

Fjóla Jónsdóttir

Markmið rannsóknarinnar er að auka styrk hnésins, þannig að það geti þolað meira álag í göngu, ásamt því að minnka stífni þess þegar það er ekki undir álagi. „Þessum markmiðum má meðal annars ná fram með því að bæta rafsegulvökva hnésins og með því að bæta segulrás þess. Við höfum notað reiknifræðilegar aðferðir til að besta segulrásina og nú erum við að þróa nýja gerð vökva sem inniheldur nanóagnir, en eiginleikar hins nýja vökva verða sniðnir að notkunarskilyrðum í gervihnjáliðum,“ segir Fjóla.

„Rafsegulvökvi með þessa eiginleika mun bæta gervihné og gera notkun þess mögulega fyrir breiðari hóp notenda. Þetta er gríðarlega spennandi verkefni sem við erum að fást við og getur haft mikið að segja fyrir fatlaða sem þurfa á þessum búnaði að halda. Það hefur bein áhrif á lífsgæði að hnéð verði í senn sterkara og þjálla.“

„Það sem heillar mig við þetta verkefni er hvernig við notum hátækni til að þróa búnað sem nýtist beint til að auka lífsgæði fólks. Það er mjög gefandi að hafa tækifæri til að vinna í verkefnum af þessu tagi,“ segir Fjóla.