Einar Stefánsson, prófessor í Læknadeild
„Við viljum að nemendur bæði stundi hefðbundna akademíska þekkingaröflun og komi líka bókvitinu í askana,“ segir Einar Stefánsson, prófessor í læknisfræði við Háskóla Íslands. Einar hlaut Jules Gonin verðlaunin fyrir framlag sitt til augnlækninga og þá sérstaklega á sviði rannsókna á sjónhimnusjúkdómum.
„Íslenskar augnrannsóknir standa framarlega og eru áberandi í alþjóðavísindasamfélaginu,“ segir Einar. „Íslendingar eru einnig meðal þeirra fremstu þegar kemur að birtum vísindagreinum í fræðiritum um læknisfræði, bæði hvað varðar magn greinanna og hversu mikið er vitnað í þær af öðrum fræðimönnum.“
Einar Stefánsson
Einar hefur lagt stund á margs konar rannsóknir á sviði augnlækninga. „Í öllum verkefnunum hafa doktorsnemar tekið þátt í rannsóknunum. Eitt af meginhlutverkum háskóla er að efla vísindi sem leiða af sér ekki einungis aukna þekkingu, heldur einnig nýsköpun í atvinnulífi. Framhaldsnemarnir hafa tekið mjög virkan þátt í þessu og hafa komið að því að stofna sprotafyrirtæki utan um rannsóknirnar,"

Einar er aðalritstjóri eins virtasta alþjóðlega fagtímarits augnlækna, Acta Ophthalmologica. „Það er lýsandi fyrir stöðu augnlækninga á Íslandi að skrifstofur tímaritsins eru í Reykjavík," segir Einar.
Einar hefur lagt stund á margs konar rannsóknir á sviði augnlækninga. „Í öllum verkefnunum hafa doktorsnemar tekið þátt í rannsóknunum. Eitt af meginhlutverkum háskóla er að efla vísindi sem leiða af sér ekki einungis aukna þekkingu, heldur einnig nýsköpun í atvinnulífi. Framhaldsnemarnir hafa tekið mjög virkan þátt í þessu og hafa komið að því að stofna sprotafyrirtæki utan um rannsóknirnar," segir Einar.
Eitt þessara sprotafyrirtækja, Oxymap, framleiðir tæki til að mæla súrefnisbúskap augans. „Við höfum selt nokkur eintök til útlanda og vonandi mun þetta leiða til framfara í greiningu og meðferð augnsjúkdóma," segir Einar. Annað verkefni hans, sprotafyrirtækið Oculis, snýr að þróun augnlyfja. „Við höfum unnið með nanóagnir í augndropum sem auka frásog lyfja inn í augað. Þannig má bæta lyfjameðferð við ýmsum algengum augnsjúkdómum."
Þá hefur Einar rannsakað tengsl sykursýki og blindu. „Sykursýki er ein algengasta orsök blindu og vaxandi heilbrigðisvandamál," segir Einar. „Það hefur náðst gríðarlegur árangur á Íslandi í að minnka hættuna á blindu hjá sykursjúkum. Nú erum við að nota upplýsingatækni til að fullkomna kerfið okkar og koma því á framfæri á alþjóðavettvangi."
Einar lærði læknisfræði við Háskóla Íslands, en hélt svo til Bandaríkjanna þar sem hann nam lífeðlisfræði við Duke-háskólann. Hann lauk doktorsprófi og sérnámi í augnlækningum, en hefur kennt við Háskóla Íslands frá 1988. Hann hefur hlotið fjölda verðlauna fyrir störf sín, meðal annars Pöhl-verðlaunin í Þýskalandi og verðlaun Synoptik Fonden í Danmörku.