Soffía Elín Sigurðardóttir, doktorsnemi í lýðheilsu- vísindum, rannsakar nú taugaþroska hjá fóstur- börnum. Hún segir að valið á viðfangsefninu hafi verið nokkuð skýrt frá upphafi. „Áhugi minn á fósturbörnum vaknaði þegar ég starfaði sem sálfræðingur Barnaverndar Reykjavíkur. Verkefni mín sneru að hagsmunum barna og þar á meðal ýmsu sem viðkemur fósturbörnum. Kveikjan að rannsókninni þróaðist í kjölfarið,“ segir Soffía.
Soffía Elín Sigurðardóttir
Doktorsrannsóknin er sú fyrsta sinnar tegundar á Íslandi. Vonast er til þess að með auknum upplýsingum verði hægt að skilgreina enn frekar en nú er hægt þjónustu og úrræði sem gagnast börnunum áður en til fósturráðstöfunar kemur, á meðan fóstur stendur yfir og að því loknu.

Doktorsrannsóknin skiptist í fernt. Unnið er úr fyrirliggjandi gögnum um fósturráðstafanir síðastliðinn áratug annars vegar og hins vegar greinir Soffía ítarlega þroska barnanna sem verið var að ráðstafa í fóstur. Soffía vann síðan nánari útfærslu á verkefninu í samráði við handleiðara sinn, Sólveigu Jónsdóttur. „Þar að auki hef ég öfluga doktorsnefnd á bak við mig,“ segir Soffía.
Hún segir rannsóknir á fósturbörnum á Íslandi og á barnavernd almennt af mjög skornum skammti. „Ég sækist í krefjandi viðfangsefni og vissi að málaflokkurinn barnavernd yrði bæði þarft og áhugavert rannsóknarefni,“ segir hún.
Doktorsrannsóknin er sú fyrsta sinnar tegundar á Íslandi. Vonast er til þess að með auknum upplýsingum verði hægt að skilgreina enn frekar en nú er hægt þjónustu og úrræði sem gagnast börnunum áður en til fósturráðstöfunar kemur, á meðan fóstur stendur yfir og að því loknu. Soffía reiknar með að fyrstu niðurstöður úr rannsókninni verði birtar vorið 2014.
Leiðbeinandi: Sólveig Jónsdóttir, klínískur taugasálfræðingur við Grensásdeild Landspítala.