„Innflytjendum sem eru einstæðir foreldrar tekst að aðlagast íslensku samfélagi, sjá fyrir fjölskyldunni og samræma vinnu og barnauppeldi með alls kyns aðstoð frá félagslega kerfinu,“ segir Fuhui Chen sem útskrifaðist með MA-próf í alþjóðlegu námi í menntunarfræði vorið 2013. „Ég hef kannað hvernig einstæðir foreldrar meðal innflytjenda sjá sjálfum sér og fjölskyldu sinni farborða og ég leitast einnig við að skilja upplifun barnanna í menntakerfinu.“
Fuhui Chen
„Stuðningur við einstæða foreldra meðal innflytjenda á Íslandi er almennt góður, hvort heldur um er að ræða tengslanet, fjárhagsaðstoð frá ríkinu eða sértæk úrræði í skólum, og þeir njóta almennt einnig samfélagslegrar viðurkenningar“

Fuhui er kínversk og hefur sjálf verið útlendingur á Íslandi. „Ég hef mikinn áhuga á málefnum innflytjenda. Vegna þess hve lítið er vitað um einstæða foreldra í hópi innflytjenda valdi ég það viðfangsefni. Mér finnst að það ætti að veita þessum hópi meiri athygli, svo og menntun barna þeirra,“ segir Fuhui.
Innflytjendur eru tæp níu prósent íbúa á Íslandi samkvæmt Hagstofu Íslands 2012. Fjöldi eins foreldris fjölskyldna er 7,2 prósent og 16,2 prósent af heildarfjölda kjarnafjölskyldna. „Stuðningur við einstæða foreldra meðal innflytjenda á Íslandi er almennt góður, hvort heldur um er að ræða tengslanet, fjárhagsaðstoð frá ríkinu eða sértæk úrræði í skólum, og þeir njóta almennt einnig samfélagslegrar viðurkenningar,“ segir Fuhui enn fremur.
Hún vonast til að ljá þessum tiltekna minnihlutahópi rödd með rannsókn sinni en um leið leggja
til ný rannsóknargögn til íslensks samfélags og menntakerfisins. „Sögur einstaklinganna sem ég hef safnað í viðtölum í þessari rannsókn geta gagnast öðrum einstæðum foreldrum í hópi innflytjenda. Þar er að finna upplýsingar um hvar þessi hópur geti fengið hjálp og stuðning og hvernig best sé að haga menntun barna innflytjenda á Íslandi,“ segir hún að lokum.
Leiðbeinandi: Hanna Ragnarsdóttir, prófessor við Uppeldis- og menntunarfræðideild.