Skip to main content

Máttur svæðisbundinna fjölmiðla

Hrafnkell Freyr Lárusson, doktorsnemi í sagnfræði

Íbúar í dreifbýli víða um land hafa um langt skeið notið góðs af öflugum svæðisbundnum fjölmiðlum. Hvert skyldi gildi svæðisbundinna fjölmiðla vera fyrir fámenn svæði? Og hver er skýringin á styrk eða erfiðleikum fjölmiðla í dreifbýli? 

Hrafnkell Freyr Lárusson, doktorsnemi í sagnfræði, vinnur að rannsókn sem hann nefnir „Tjáningarfrelsi og svæðisbundnir fjölmiðlar á Íslandi“ þar sem hann hyggst mæla áhrif og völd svæðisbundinna fjölmiðla og skýra valdatengsl þeirra við samfélagið sem þeir starfa í. „Meginrannsóknarspurningar mínar í verkefninu snúast því um valdaafstöðu og gagnkvæm áhrif íslenskra fjölmiðla og almennings. Sérstök áhersla verður lögð á Austurland, sem nýtur ákveðinnar sérstöðu vegna óvenju öflugrar fjölmiðlunar þrátt fyrir fólksfæð og fjarlægð frá stærstu byggðarkjörnum landsins,“ segir Hrafnkell. Jafnframt segir hann rannsóknina miðast við tvö tímabil, hið fyrra frá 1870 til 1930 og hið síðara frá 1980 til 2010.

Hrafnkell Freyr Lárusson

Hrafnkell Freyr Lárusson, doktorsnemi í sagnfræði, vinnur að rannsókn sem hann nefnir „Tjáningarfrelsi og svæðisbundnir fjölmiðlar á Íslandi“ þar sem hann hyggst mæla áhrif og völd svæðisbundinna fjölmiðla og skýra valdatengsl þeirra við samfélagið sem þeir starfa í.

Hrafnkell Freyr Lárusson

Sambærileg rannsókn hefur ekki áður verið gerð hérlendis segir Hrafnkell. „Rannsóknin verður byggð á upplýsingum frá austfirskum fjölmiðlum, efnistökum þeirra og gagnasöfnum og fræðilegum heimildum. Auk þess verður byggt á spurningakönnunum og viðtölum, leitað í útgefið efni um fjölmiðlun á Íslandi ásamt ævisögulegum skrifum og persónulegum heimildum,“ segir Hrafnkell. 

Hrafnkell hefur lengi haft áhuga á fjölmiðlum og samfélagslegum áhrifum þeirra en bæði BA-ritgerð og MA-ritgerð hans fjölluðu um fjölmiðla þótt með ólíkum hætti væri. „Þegar ég vann að MA-ritgerðinni varð mér ljóst hversu áhrifamiklir svæðisbundnu fjölmiðlarnir geta verið. Það kom mér aftur á móti á óvart hversu lítið hafði verið fjallað um þetta efni. Ég sá því þarna tækifæri til að róa á vannýtt mið í fræðunum,“ segir Hrafnkell. 

Verkefnið er skammt á veg komið og því telur Hrafnkell að ekki sé skynsamlegt á þessari stundu að ræða væntanlegar niðurstöður. „Hér er um að ræða rannsókn á sviði sem lítið hefur verið skoðað en ég tel líklegt að þessi rannsókn sýni fram á áhrifamátt fjölmiðla sem skapandi og mótandi afls í samfélaginu. Ég vinn með tvö tímaskeið og það býður einnig upp á samanburð á ýmsum þáttum varðandi fjölmiðlun, þróun samfélaga og þátttöku almennings í mótun þeirra,“ segir Hrafnkell að lokum. 

Leiðbeinandi: Guðmundur Hálfdanarson, prófessor við Sagnfræði- og heimspekideild.