Skip to main content

Loftslagsbreytingar og jöklaferðir

„Margir hafa rannsakað áhrif loftslagsbreytinga á jökla og landslag síðastliðna áratugi, ekki síst á Íslandi. Hins vegar hefur nánast ekkert verið rannsakað hvaða áhrif loftslagsbreytingarnar hafa á ferðaþjónustu sem nýtir þetta landslag. Markmið rannsóknarinnar er því að kanna hvaða áhrif loftslagsbreytingar hafa á jöklaferðamennsku á Íslandi í nútíð og framtíð og þróa aðferðir fyrir þennan geira ferðamennskunnar til þess að laga sig að áhrifum af slíkum breytingum og milda þau,“ segir Johannes Theodorus Welling, doktorsnemi í ferðamálafræði, um doktorsrannsókn sína. 

Johannes Theodorus Welling

Johannes beinir sjónum sínum sérstaklega að áhrifum loftslagsbreytinga á ferðamennsku í Vatnajökulsþjóðgarði en hann þekkir það umhverfi ágætlega þar sem hann hefur áður rannsakað félagsleg og efnahagsleg áhrif þjóðgarðsins á nærliggjandi sveitarfélög.

Johannes Theodorus Welling

Áhuga Johannesar á viðfangsefninu má rekja til meistaranáms hans í umhverfis- og auðlindastjórnun við Free-háskólann í Amsterdam. Þar fór hann að velta fyrir sér hvernig loftslagsbreytingar hafa áhrif á skynjun og notkun landslags. „Jöklar og nágrenni þeirra eru meðal vinsælustu ferðamannastaða á Íslandi. Jöklarnir eru hins vegar mjög viðkvæmir fyrir umhverfisbreytingum og hingað til hafa engar ítarlegar rannsóknir verið gerðar á því hvaða áhrif þær umhverfisbreytingar sem tengjast loftslagi hafa á ferðamennsku á Íslandi,“ bendir Johannes á. 

Johannes beinir sjónum sínum sérstaklega að áhrifum loftslagsbreytinga á ferðamennsku í Vatnajökulsþjóðgarði en hann þekkir það umhverfi ágætlega þar sem hann hefur áður rannsakað félagsleg og efnahagsleg áhrif þjóðgarðsins á nærliggjandi sveitarfélög. „Það má reikna með að jöklalandslagið á Íslandi breytist umtalsvert á næstu 20–40 árum og það mun hafa áhrif bæði á útbreiðslu og gæði þeirrar þjónustu sem boðið er upp á í jöklaferðamennsku á Íslandi,“ segir Johannes. 

Johannes segir rannsóknina ekki aðeins veita nauðsynlega sýn á það hvaða áhrif loftslagsbreytingar koma til með að hafa á jöklaferðamennsku. „Hún eykur einnig skilning okkar á því flókna og gagnkvæma sambandi sem er milli jökla og ferðamennsku því að greint verður hvaða þjónusta, sem tengd er þessu landslagi, er nauðsynleg til þess að efla þróun ferðamennsku á svæðum þar sem umhverfis- og samfélagsbreytingar eiga sér stað,“ segir Johannes. 

Leiðbeinendur: RannveigÓlafsdóttir, dósent við Líf- og umhverfisvísindadeild, og Þorvarður Árnason, forstöðumaður Rannsóknaseturs Háskóla Íslands á Hornafirði.