Skip to main content

Þróun ritunar hjá yngstu nemunum

„Meginmarkmiðið er að rannsaka hvernig rituð textagerð þróast á aldursbilinu 6–9 ára, kanna forspárgildi umskráningar, þ.e. færni í að umskrá stafi í hljóð, málþroska og sjálfstjórnar á leikskólaaldri fyrir frammistöðu í ritun í fyrstu bekkjum grunnskóla og áhrif þessara þátta á framvinduna frá ári til árs í 1.–4. bekk,“ segir Rannveig Oddsdóttir, doktorsnemi í menntunarfræðum. 

Málþroski og læsi hefur lengi verið hugðarefni Rannveigar og í ritun þarf að virkja hvort tveggja. „Mér finnst spennandi að rannsaka hvernig ung börn ná tökum á ritun og hvernig þau nýta umskráningu, málþroska og sjálfstjórn til að rita merkingarbæran texta. Ég hafði hug á að fara í doktorsnám þegar Hrafnhildur Ragnarsdóttir, Freyja Birgisdóttir og Steinunn Gestsdóttir fóru af stað með þriggja ára langtímarannsókn á málþroska, læsi og sjálfstjórn og mér bauðst að tengja verkefnið mitt við rannsókn þeirra,“ segir hún. 

Rannveig Oddsdóttir

„Meginmarkmiðið er að rannsaka hvernig rituð textagerð þróast á aldursbilinu 6–9 ára, kanna forspárgildi umskráningar, þ.e. færni í að umskrá stafi í hljóð, málþroska og sjálfstjórnar á leikskólaaldri fyrir frammistöðu í ritun í fyrstu bekkjum grunnskóla og áhrif þessara þátta á framvinduna frá ári til árs í 1.–4. bekk“

Rannveig Oddsdóttir

Í þeim hluta rannsóknarinnar þar sem Rannveig skoðar forspárgildi umskráningar, málþroska og sjálfstjórnar á leikskólaaldri fyrir frammistöðu í ritun í fyrstu bekkjum grunnskóla og síðan áhrif þessara þátta á framfarir í ritun, leggur hún upp með þá kenningu að umskráningarfærni hafi forspárgildi fyrir frammistöðu í stafsetningu en málþroski og sjálfstjórn hafi meira að segja fyrir innihald textans. Rannveig hefur þegar birt eina vísindagrein byggða á rannsóknum sínum en hún snýst um ritaðar frásagnir og upplýsingatexta í 1. bekk. Þá er grein um þróun þessara textategunda í 2.–4. bekk í ritrýningu. 

„Niðurstöður rannsóknarinnar hjálpa okkur að skilja hvernig ritun barna þróast og hvaða væntingar er hægt að gera til barna á hverjum aldri. Hvort tveggja er mikilvægt fyrir þróun kennsluhátta,“ útskýrir Rannveig. 

Leiðbeinandi: Hrafnhildur Ragnarsdóttir, prófessor við Uppeldis- og menntunarfræðideild. 

Meðleiðbeinandi: Freyja Birgisdóttir, dósent við Uppeldis- og menntunarfræðideild.