Helgi Þór Gunnarsson, meistaranemi í fötlunarfræðum
Samkvæmt nýlegri rannsókn við Háskóla Íslands uppfylla 15% íslenskra fanga öll skilyrði um ofvirkni og athyglisbrest (ADHD) og tæplega helmingur uppfyllir skilyrði um ADHD í barnæsku. „Það er ákaflega mikilvægt að rýna betur í þennan málaflokk til að geta áttað sig betur á stöðunni hérlendis," segir Helgi Þór Gunnarsson.
Í MA-verkefni sínu í fötlunarfræði samþættir Helgi Þór öll þau fræði sem hann hefur lagt stund á við Háskóla Íslands: fötlunarfræði, afbrotafræði og uppeldis- og menntunarfræði. Ákaflega lítið er vitað um félagslegar aðstæður afbrotamanna sem greinst hafa með ADHD einhvern tíma á lífsleiðinni. „Því tel ég ákaflega mikilvægt að hlusta á rödd þessa hóps og greina frá sjónarmiðum einstaklinganna," segir Helgi Þór sem er fyrstur til að afla skipulegra gagna hérlendis um þetta málefni.
Rannsóknin er í fullum gangi: „Barnæska þeirra afbrotamanna með ADHD sem ég hef þegar tekið viðtöl við einkennist af slæmu gengi í skóla, félagslegri einangrun, rótleysi og tíðum búferlaflutningum," segir Helgi Þór, en þessi atriði virðast hafa átt mestan þátt í að einstaklingarnir villtust út af beinu brautinni í heim fíkniefna og þaðan í afbrot. Þátttakendur hafa verið greindir með ADHD eða telja sig vera með það og allir teljast þeir til afbrotamanna.
Helgi Þór Gunnarsson
„Barnæska þeirra afbrotamanna með ADHD sem ég hef þegar tekið viðtöl við einkennist af slæmu gengi í skóla, félagslegri einangrun, rótleysi og tíðum búferlaflutningum,"

Hluti þeirra mun sitja í fangelsi á meðan rannsóknin fer fram, en flestir munu um frjálst höfuð strjúka. Markmiðið er að þátttakendur endurspegli sem mesta breidd hvað félagslega og efnahagslega þætti varðar. Helgi Þór vonast til að niðurstöður rannsóknarinnar muni endurspegla raddir og reynslu þessa samfélagshóps, leiði til betri skilnings á félagslegum aðstæðum þeirra og hvernig unnt er að styðja þá til betri vegferðar í lífinu. „Jafnframt er stefnt að því að rannsóknin verði grundvöllur að tillögum til aðgerða sem eru til þess fallnar að fyrirbyggja að börn og ungmenni með athyglisbrest og ofvirkni leiðist út í afbrot og aðra áhættuhegðun."