Skip to main content

Rannsóknir á örtækni skipta miklu máli

Kristján Leósson, vísindamaður í eðlisfræði

Örtækni, sem oftast er betur þekkt sem míkró- eða nanótækni, hefur haft mikil áhrif á tækniþróun síðustu áratuga. Árið 2006 var nýr örtæknikjarni opnaður við Háskóla Íslands og er hann sá fyrsti sinnar tegundar hérlendis. Þar glíma vísindamenn við að rannsaka og framleiða hluti sem eru minni en einstök rykkorn, einn þeirra er Kristján Leósson, vísindamaður hjá Eðlisfræðistofu Raunvísindastofnunar Háskóla Íslands.

Kristján Leósson

Mikil uppbygging hefur átt sér stað í örtækni á síðustu árum. Þessi uppbygging er m.a. hluti af framtaki svonefnds örtæknivettvangs. Kristján hefur haft umsjón með uppsetningu hluta aðstöðunnar, þar á meðal hönnun á svokölluðu hreinherbergi til örtækniframleiðslu.

Kristján Leósson

Örtækni leynist víða

Hann hefur unnið ötullega að rannsóknum á örtækni hér á landi og hefur m.a. hlotið hvatningarverðlaun Vísinda- og tækniráðs fyrir framlag sitt til rannsóknarsviðsins. Rannsóknir á örtækni skipta miklu máli, enda leynist örtækni víðar en flest okkar grunar. Öll tölvutækni, t.d. harðir diskar, geisladrif, mp3-spilarar og gsmsímar falla undir örtækni. Að auki byggir internetið á örtækni og sömuleiðis ljósleiðarar. Í dag er meira að segja hægt að kaupa ísskápa og þvottavélar þar sem yfirborð eru klædd bakteríudrepandi húð sem inniheldur silfuragnir í nanóstærð.

Mikil uppbygging hefur átt sér stað í örtækni á síðustu árum. Þessi uppbygging er m.a. hluti af framtaki svonefnds örtæknivettvangs. Kristján hefur haft umsjón með uppsetningu hluta aðstöðunnar, þar á meðal hönnun á svokölluðu hreinherbergi til örtækniframleiðslu. Hreinherbergi er vinnuaðstaða þar sem rykmengun í andrúmslofti er haldið í lágmarki svo mögulegt sé að framleiða hluti á örsmæðarkvarða.

Nanótækni færist yfir á svið læknisfræðinnar

Sjálfur hefur Kristján unnið að þróun nýrrar aðferðar til smásjárskoðunar, meðal annars á lifandi frumum. Í framtíðinni á örtæknin eftir að færast í ríkari mæli yfir svið læknisfræðinnar, m.a. til að gera lyfjagjöf skilvirkari. Tilraunir til að nota nanóagnir til að drepa krabbameinsæxli og leysa þannig að hólmi lyfja- og geislameðferðir eru hafnar og vonandi getur örtæknin hjálpað í baráttu okkar við slík vandamál. Möguleikar nanótækninnar eru óþrjótandi en Kristján segir mikilvægast að örtæknin nái að skila okkur hlutum eins og betri orkubúskap, minni mengun og skilvirkari meðferð við sjúkdómum.