Herdís Sigurjónsdóttir, doktorsnemi við Stjórnmálafræðideild
Markmið rannsóknarinnar er m.a. að skoða leiðir til að bæta stjórnsýslu almannavarna á Íslandi. Þótt margir líti vissulega til íslenska almannavarnakerfisins sem fyrirmyndar tel ég að enn sé töluvert sem bæta má hér á landi, ekki síst í héraði,“ segir Herdís Sigurjónsdóttir, doktorsnemi í opinberri stjórnsýslu, um doktorsverkefni sitt.
Herdís hefur bæði afar fjölbreyttan bakgrunn hvað varðar menntun og reynslu af störfum tengdum hamfaramálum. „Ég kynni mig stundum sem þverfræðing enda er ég lífeindafræðingur í grunninn, með meistarapróf í umhverfis- og auðlindafræði og nú doktorsnemi í opinberri stjórnsýslu,“ segir Herdís kímin og bætir við: „Ég hef unnið í þessum hamfaraheimi lengi og byrjaði hjá Rauða krossinum seint á síðustu öld. Í meistaraverkefni mínu skoðaði ég hlutverk sveitarstjórna eftir náttúruhamfarir og sá að mörgu var enn ósvarað. Ég var líka bæjarfulltrúi í mörg ár og rak mig á að margt sem sneri að sveitarfélögum í skipulagi almannavarna var óljóst.“
Herdís Sigurjónsdóttir
„Ég hef unnið í þessum hamfaraheimi lengi og byrjaði hjá Rauða krossinum seint á síðustu öld. Í meistaraverkefni mínu skoðaði ég hlutverk sveitarstjórna eftir náttúruhamfarir og sá að mörgu var enn ósvarað.“

Í verkefninu greinir hún stefnu stjórnvalda í almannavarna- og öryggismálum og nýtir m.a. viðtöl við lykilmenn í skipulagi almannavarna til að greina viðhorf, ferla, samskipti og samhæfingu vegna hamfara. „Þegar stjórnsýslan er skoðuð er dýrmætt að þekkja vel samskipti ríkis og sveitarfélaga, innviði og skipulag samfélaga frá öllum hliðum og hlutverk stjórnmálamanna og starfsmanna í þjónustu við borgarana. Allt eru þetta lykilatriði þegar kemur að aðstoð við fólk eftir náttúruhamfarir eða önnur samfélagsleg áföll,“ útskýrir Herdís.
Herdís hefur ekki látið sér nægja að kynna sér almannavarnir hér á landi því að hún sótti námskeið um almannavarnir og endurreisn í Japan árið 2012, ári eftir að risajarðskjálfti og flóðbylgja riðu þar yfir og ollu gríðarlegu tjóni.
Herdís er ekki einungis í námi því að hún starfar einnig hjá VSÓ Ráðgjöf og það getur verið strembið, að hennar sögn. „Hér á landi eru styrkir af skornum skammti og því eru margir doktorsnemar í sömu stöðu og ég. Ég er þó svo lánsöm að vinna hjá fyrirtæki sem veitir mér svigrúm til að vinna að rannsókninni minni og eins vinn ég að verkefnum sem tengjast öryggis- og hamfaramálum bæði hér heima og erlendis, sem er ómetanlegt,“ segir Herdís að lokum.
Leiðbeinandi: Ómar Hlynur Kristmundsson, prófessor við Stjórnmálafræðideild.