Helga María Heiðarsdóttir, doktorsnemi við Jarðvísindadeild
„Markmið verkefnisins er að gera reiknilíkön sem nýta má við skammtímaspár um rennsli leysingavatns frá jöklum til jökulfljóta. Ég mun skoða þá orkustrauma sem berast að yfirborði jökla og frá því, bæði geislun frá sól og himni og áhrif hlýrra og rakra vinda, og hvernig þeir valda bráðnun íss og snævar,“ segir Helga María Heiðarsdóttir, doktorsnemi í jarðfræði.
Jöklar eru Helgu Maríu hugleiknir. Hún sinnir ekki aðeins rannsóknum á jöklum í námi sínu heldur starfar hún einnig sem jöklaleiðsögukona fyrir Íslenska fjallaleiðsögumenn.
Helga María Heiðarsdóttir
„Markmið verkefnisins er að gera reiknilíkön sem nýta má við skammtímaspár um rennsli leysingavatns frá jöklum til jökulfljóta.

Doktorsverkefni Helgu Maríu á rætur í meistaraverkefni sem hún vann við Háskólann í Ósló í samstarfi við vatns- og orkuráðuneyti Noregs. „Mig langaði að halda áfram á sömu braut því að jöklafræðin er heillandi fag. Það er mjög lifandi, fjölþætt og fræðilega áhugavert og um leið mjög hagnýtt,“ segir Helga María enn fremur.
Hugurinn leitaði heim og þar sem Helgu Maríu hafði lengi langað til að vinna með jöklahópi Jarðvísindastofnunar Háskólans hafði hún samband við Helga Björnsson, vísindamann við stofnunina, og úr varð verkefni sem Helga vinnur nú að í samstarfi við Landsvirkjun.
Helga María segir aðspurð að hún sé byrjuð að afla gagna og greina þau en meðal annars verður notast við gögn frá sjálfvirkum veðurstöðvum á jöklum og frá rennslismælingum í jökulám. „Búist er við auknu afrennsli frá jöklum samhliða hlýnandi veðurfari og það mun leiða til aukins vatnsmagns í jökulám. Niðurstöðurnar munu því væntanlega nýtast til að auka skilning á áhrifum veðurfars á rýrnun jökla, bæta nýtingu vatnsauðlinda og meta flóð,“ segir Helga María að lokum.
Leiðbeinendur: Guðfinna Th. Aðalgeirsdóttir, dósent við Jarðvísindadeild, og Helgi Björnsson, vísindamaður emeritus við Jarðvísindastofnun Háskólans