Víkingur Másson, MS frá Viðskiptafræðideild
„Rannsóknin snerist um að kanna viðhorf neytenda til vörumerkisuppbyggingar hljómsveita. Í rannsóknarspurningunni tókst ég á við það hvernig íslensk rokkhljómsveit getur búið til sterkt vörumerki og viðhaldið því að mati neytenda,“ segir Víkingur Másson, sem sameinaði áhugamál sitt og fræðin í lokaverkefni sínu í meistaranámi í markaðsfræði og alþjóðaviðskiptum við Viðskiptafræðideild.
Víkingur, sem er sjálfur gítarleikari í rokksveitinni Hoffman, segir að kveikjan að rannsókninni hafi verið sú að honum hafi fundist vanta sterkari fræðilegan grunn fyrir þær aðferðir sem hljómsveitir nota til að byggja upp sveitina eða „vörumerki“ sitt, eins og hann orðar það. „Ég hef í gegnum skólagönguna ávallt reynt að tengja hugtakið hljómsveit við hefðbundnar vörur og þjónustu með tilliti til þess hvernig vörumerki er byggt upp og því viðhaldið,“ segir hann enn fremur.
Víkingur Másson
„Í rannsóknarspurningunni tókst ég á við það hvernig íslensk rokkhljómsveit getur búið til sterkt vörumerki og viðhaldið því að mati neytenda.“

Í rannsókninni kannaði Víkingur afstöðu nemenda við Háskóla Íslands til ýmissa þátta sem snúa að vörumerkjauppbyggingu rokkhljómsveita. Rannsóknin leiddi m.a. í ljós að það skipti þátttakendur nær engu máli hvort íslensk rokkhljómsveit bæri íslenskt eða enskt nafn. Þá töldu þátttakendur að rokkhljómsveitir ættu að huga jafnt að nafni, ímynd, orðspori og trausti við uppbyggingu á vörumerki sínu og enn fremur reyndust þátttakendur vera jákvæðari fyrir því að einkafyrirtæki styddu rokkhljómsveitir en opinberir aðilar.
Víkingur bendir á að í rannsókninni séu mælitæki, sem að jafnaði eru notuð fyrir hefðbundin vörumerki, aðlöguð til þess að rannsaka hljómsveitir sem vörumerki. „Hljómsveitir, tónlistarmenn og aðrir hagsmunaaðilar geta með þessu móti kannað betur viðhorf neytenda til vörumerkis síns og þannig öðlast betri skilning á því hvernig þeir eigi að byggja upp vörumerkin með fullnægjandi gögnum og upplýsingum,“ bendir Víkingur á að lokum.
Leiðbeinandi: Auður Hermannsdóttir, aðjunkt við Viðskiptafræðideild.