Skip to main content

Stelpur hvattar til að bæla reiði

Esther Ösp Valdimarsdóttir,  MA-nemi við Félags- og  mannvísindadeild

Esther Ösp Valdimarsdóttir, meistaranemi í mannfræði við Háskóla Íslands, hlaut styrk úr Styrktarsjóði Margaretar og Bents Schevings Thorsteinssonar til rannsóknarinnar Reiðar stelpur.

„Rannsóknin snýst um athugun á því hvort stelpum sé almennt gefið minna svigrúm til að tjá reiðitengdar tilfinningar en strákum. Kveikja rannsóknarinnar er bókin The secret lives of girls: What girls really do – Sex, play, aggression and their guilt. Þar tekur höfundurinn, Sharon Lamb, viðtöl við ólíkar konur á ýmsum aldri og kemst að því að allar eiga þær það sameiginlegt að hafa ekki fengið réttmæta útrás fyrir reiðitengdar tilfinningar í æsku. Afleiðingin var sú að þær bældu tilfinningar sínar og fengu að lokum óréttmæta útrás fyrir hana, til dæmis með tilefnislausum ofsaköstum eða valdbeitingu í samskiptum sem jafnvel enduðu með einelti.“

Esther Ösp Valdimarsdóttir

„Hér eru strákar hvattir til að fá útrás og vera með læti, í anda orðatiltækja á borð við „strákar eru og verða  strákar“ en stelpum er aftur á móti uppálagt að vera stilltar og prúðar, með öðrum orðum „halda kjafti og vera sætar“.“

Esther Ösp Valdimarsdóttir

Esther Ösp var strax sannfærð um að eitthvað álíka ætti sér stað í íslensku samfélagi. „Hér eru strákar hvattir til að fá útrás og vera með læti, í anda orðatiltækja á borð við „strákar eru og verða strákar“ en stelpum er aftur á móti uppálagt að vera stilltar og prúðar, með öðrum orðum „halda kjafti og vera sætar“.“  

Stelpurnar sem tóku þátt í rannsókninni eru ekki hvattar til að nýta reiði sína sér til eflingar. „Þannig má vera að hér sé að finna eina skýringu þess að tíðni þunglyndis, kvíða, átröskunar og sjálfspyntingarhvata hjá unglingsstúlkum virðist á ákveðnum aldri rjúka upp þótt hlutfall sams konar kvilla hjá drengjum á sama aldri standi í stað. Síðast en ekki síst er ekki ólíklegt að stelpur setji sér síður krefjandi markmið en strákar og fylgi þeim síður eftir þar sem þær öðlast ekki sambærilega færni við að nota reiðina jákvætt í formi markmiðssetningar og heilbrigðrar árásargirni. Þannig er þetta jafnréttismál en jafnrétti verður vart náð þegar aðeins annað kynið er gert fært um að berjast fyrir markmiðum sínum og hugsjónum og að setja sér mörk.“

Velferð ungmenna er höfð að leiðarljósi í rannsókn Estherar Aspar. „Ávinningurinn af rannsókninni felst fyrst og fremst í því að finna út hvernig bæta megi tilfinningalegt heilbrigði unglingsstúlkna, sem síðan hefur víðtæk jákvæð áhrif á umhverfi þeirra og framtíð.“  

Leiðbeinandi: Jónína Einarsdóttir, prófessor við Félags- og mannvísindadeild