Matthías Eydal, fræðimaður við Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum.
Yfir 30 tegundir sníkjulífvera finnast í og á villtum þorski hér við land. Sumar þeirra hafa valdið sjúkdómum og verulegum afföllum í þorskeldi,“ segir Matthías Eydal, sérfræðingur í sníkjudýrafræði við Tilraunastöð Háskóla Íslands að Keldum. Hann rannsakar um þessar mundir hvaða tegundir af svokölluðum Gyrodactylus-sníkjuormum finnast á villtum þorski og á eldisþorski í sjókvíum hér við land. Vísbendingar hafa komið fram um að ormarnir valdi töluverðu tjóni í þorskeldi.
Matthías Eydal
Magnús rannsakar um þessar mundir hvaða tegundir af svokölluðum Gyrodactylus-sníkjuormum finnast á villtum þorski og á eldisþorski í sjókvíum hér við land. Vísbendingar hafa komið fram um að ormarnir valdi töluverðu tjóni í þorskeldi.

Ormarnir sem um ræðir eru um hálfur millimetri á lengd og lifa á tálknum, roði eða uggum fiska en áhrif þeirra á heilsu þorsks eru ekki nákvæmlega þekkt. Ekki var vitað hvaða tegundir fyndust hér við land. Matthías hóf því rannsóknasamstarf við kanadíska vísindamenn en ætlunin er að kanna útbreiðslu og tegundasamsetningu ormanna á þorski í Norður-Atlantshafi.
Matthías segir að nú þegar hafi fundist fjórar tegundir af þessum sníkjuormum á villtum þorski við Ísland og sex tegundir við Kanada, þar af fjórar þær sömu og hér, en hugsanlega er um mismunandi stofna að ræða. „Það er athyglisvert að ein ákveðin tegund var ríkjandi á villtum þorski við Ísland en önnur tegund var ráðandi á eldisþorski, jafnvel í sama firði. Við Kanada var síðari tegundin líka allsráðandi á eldisþorski. Tegundin heldur sig á tálknum þorsksins og getur valdið skemmdum á þeim. Henni þarf væntanlega að gefa sérstakan gaum í þorskeldi,“ bendir Matthías á.
Aðspurður um þýðingu rannsóknanna segir Matthías að niðurstöðurnar muni án efa nýtast þeim sem starfa í þorskeldi og sömuleiðis fisksjúkdómafræðingum. „Rannsóknin eykur m.a. þekkingu á tegundasamsetningu Gyrodactylus-orma á Atlantshafsþorski og á því hvaða tegundir eru líklegastar til að herja á þorsk við eldisaðstæður,“ segir Matthías