Skip to main content

Rannsaka árangur skurðaðgerða

Andri Wilberg Orrason, Daði Helgason, Hera Jóhannesdóttir, Sindri Aron  Viktorsson og Tómas Andri Axelsson, kandídatsnemar við Læknadeild.

Rannsaka árangur skurðaðgerða samhliða fullu læknanámi – rannsóknirnar ekkert skúffufóður.

Að stunda fullt nám við Háskóla Íslands er ærinn starfi, hvar í deild sem fólk er statt. Hópur læknanema á fjórða til sjötta ári lætur það hins vegar ekki nægja heldur vinnur við rannsóknir samhliða náminu. Þar njóta þau leiðsagnar Tómasar Guðbjartssonar, yfirlæknis á Landspítala og prófessors í skurðlækningum.

Þau Andri Wilberg Orrason, Daði Helgason, Hera Jóhannesdóttir, Sindri Aron Viktorsson og Tómas Andri Axelsson eiga það sameiginlegt að hafa fyrst kynnst rannsóknum í svokölluðu þriðja árs rannsóknaverkefni í læknisfræðinni. Þar kviknaði áhuginn og m.a. með tilstyrk Rannís hafa þau sinnt rannsóknum, bæði í sumarstarfi og samhliða náminu. Rannsóknir fimmmenninganna snúa m.a. að árangri ýmiss konar skurðaðgerða á brjóstholi hér á landi, s.s. ósæðarlokuskipta, kransæðahjáveituaðgerða og skurðaðgerða vegna lungnakrabbameins.

Andri Wilberg Orrason, Daði Helgason, Hera Jóhannesdóttir, Sindri Aron  Viktorsson og Tómas Andri Axelsson

Rannsóknir fimmmenninganna snúa m.a. að árangri ýmiss konar skurðaðgerða á brjóstholi hér á landi, s.s. ósæðarlokuskipta, kransæðahjáveituaðgerða og skurðaðgerða vegna lungnakrabbameins.

Andri Wilberg Orrason, Daði Helgason, Hera Jóhannesdóttir, Sindri Aron Viktorsson og Tómas Andri Axelsson

Hluti af rannsóknavinnunni er að skrifa vísindagreinar og birta þær í innlendum og erlendum tímaritum ásamt því að kynna niðurstöður rannsóknanna á ráðstefnum heima og erlendis. Sindri var til að mynda meðhöfundur að grein um hjartaskurðaðgerðir sem birtist í Scandinavian Cardiovascular Journal nýverið. Þá hlutu Andri og félagi hans, Kristján Baldvinsson, fyrstu verðlaun fyrir erindi sitt um rannsóknir á árangri skurðaðgerða vegna lungnakrabbameins hjá öldruðum á Íslandi á árlegu vísindaþingi norrænna hjarta- og lungnaskurðlækna í Litháen árið 2012.

„Það er markmið okkar að birta greinar, bæði hér heima og erlendis, en ég hef fyrst og fremst verið að vinna í gagnagrunni en úr honum eigum við eftir að geta skrifað margar greinar til viðbótar,“ segir Daði sem er á fjórða ári. Andri bætir við að mikil áhersla sé lögð á að þau birti greinar um rannsóknir sínar. „Eins og Tómas, leiðbeinandi okkar, orðar það: Við erum ekki að búa til neitt skúffufóður,“ bætir Sindri við í léttum tón.

Góður grunnur fyrir doktorsnám

Hópurinn er sammála um að það hafi mikla þýðingu að stunda rannsóknir samhliða læknanáminu. „Þetta er líka góður grunnur ef maður vill fara í doktorsnám síðar meir. Maður er þá betur að sér um rannsóknaraðferðirnar,“ bætir Hera við og undir það tekur Daði. „Það er spennandi áskorun að flytja erindi á þingum og góð reynsla fyrir framtíðina,“ segir hann.

„Það þurfa allir einhvern tíma að taka þátt í rannsóknum og eina spurningin er hvenær maður vill byrja. Mér fannst tilvalið að byrja strax,“ segir Tómas Andri og bætir við að hann læri einnig mikið á því að kynna sér vel afmarkað rannsóknarefni með tilheyrandi lestri.

Aðspurð segja þau að rannsóknastörf heilli að loknu sérnámi. „Ég held að maður muni óhjákvæmilega koma til með að sinna þeim, bæði af áhuga og þeim ávöxtum sem það færir manni. Ég sé t.d. fyrir mér að klára doktorspróf fyrr eða síðar og þá er þetta grunnurinn, að læra rannsóknaraðferðir og vísindalega hugsun,“ segir Sindri.

„Mér finnst það tilheyra læknisstarfinu að vinna að rannsóknum, það tengist bæði framförum og gæðaeftirliti á því sem maður er að gera. Þetta er bara hluti af starfinu og það á að sinna því,“ segir Andri og Hera bætir við að lokum: „Rannsóknir eru spennandi og skemmtilegur vettvangur og gera læknisstarfið fjölbreyttara en ella.“