Skip to main content

Þjónusta við börn sem koma í Kvennaathvarfið

Bergdís Ýr Guðmundsdóttir, MA frá Félagsráðgjafardeild

„Engin skilgreind þjónusta er í boði fyrir börn sem koma í Kvennaathvarfið. Börnin eru ekki upplýst við komu sína um hvaða staður þetta er og þess eru dæmi að börn séu fjarverandi frá skóla í allt að þrjá mánuði vegna þess að þau dveljast þar,“ segir Bergdís Ýr Guðmundsdóttir um niðurstöður meistararannsóknar sinnar sem ber heitið Dvöl barna í Kvennaathvarfinu.

Bergdís tók viðtöl við starfskonur í Kvenna- athvarfinu, ásamt börnum sem þar höfðu dvalið með mæðrum sínum en mæðurnar svöruðu spurningalista. „Börnunum líður vel þarna og upplifa öryggið sem húsið og staðurinn ber með sér en það kom skýrt fram að ekki er rætt sérstaklega við þau. Eldri börnin fara oft að passa þau yngri og taka ábyrgð á líðan móður sinnar, sem er auðvitað mjög alvarlegt mál. Börn eiga að fá að vera börn,“ sagði Bergdís.

Bergdís Ýr Guðmundsdóttir

„Engin skilgreind þjónusta er í boði fyrir börn sem koma í Kvennaathvarfið. Börnin eru ekki upplýst við komu sína um hvaða staður þetta er og þess eru dæmi að börn séu fjarverandi frá skóla í allt að þrjá mánuði vegna þess að þau dveljast þar.“

Bergdís Ýr Guðmundsdóttir

Hún bendir á að starfskonurnar geri sitt besta til þess að sjá um börnin: „Þær veita þeim hlýju og ástúð og eru þeim innan handar. En það er nauðsynlegt að huga betur að þessum börnum, það þarf að hlusta á þau,“ segir Bergdís.

Niðurstöðurnar voru í samræmi við þær væntingar sem Bergdís hafði í upphafi. „Miðað við breskar og norskar rannsóknir sem ég hafði skoðað fannst mér líklegt að börnin upplifðu sig afskipt og niðurstöðurnar benda til þess. Þau eru tekin úr sinni vanalegu rútínu og daglega lífi en allt starfið í Kvennaathvarfinu, reglur og starfsaðferðir, beinist að konunum sjálfum.“

Bergdís telur að niðurstöðurnar geti komið að miklu gagni til að bæta þjónustu við börnin. „Það þarf að efla samstarf milli stofnana sem vinna með hagsmuni barna að leiðarljósi. Þær stofnanir lúta lögum um opinbera starfsemi en eru ekki félagasamtök líkt og Kvennaathvarfið. Það þarf að aðstoða þessi börn með ábyrgum hætti og koma í veg fyrir að þau falli einhvers staðar á milli skips og bryggju í kerfinu,“ segir Bergdís.

Leiðbeinandi: Anni Guðný Haugen, lektor við Félagsráðgjafardeild