Skip to main content

Vill umbreyta mengun í verðmæti

Sigurður Brynjólfsson, prófessor við Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild

„Markmiðið með þessu verkefni er að hanna efnaverksmiðju sem nýtir orku frá jarðvarmaverum á hagkvæman hátt og bindur koltvísýring í verðmæt efni með hjálp þörunga.“ Þetta segir Sigurður Brynjólfsson prófessor. Hann fer fyrir hópi vísindamanna sem nýta svokallaða kerfislíffræði við að hagnýta lífverur til framleiðslu á verðmætum afurðum. „Hönnunin byggist á ljósdíóðum og líftækni og nýtir hún jarðgas eða koltvísýring frá jarðhitasvæðum.“

Sigurður Brynjólfsson

„Markmiðið með þessu verkefni er að hanna efnaverksmiðju sem nýtir orku frá jarðvarmaverum á hagkvæman hátt og bindur koltvísýring í verðmæt efni með hjálp þörunga.“

Sigurður Brynjólfsson

Fyrir nokkrum árum setti Háskóli Íslands á fót Rannsóknasetur í kerfislíffræði undir forystu Bernhards Pálssonar, gestaprófessors við skólann. Þar er unnið að rannsóknum á kerfislíffræði mannafruma og baktería. Gerð eru reiknilíkön af efnaskiptaferlum þeirra. „Ákveðið var að tengja setrið við íslenskan veruleika og þar skipar jarðvarminn stóran sess,“ segir Sigurður. „Við vinnslu jarðhita er þúsundum tonna af koltvísýringi blásið út í andrúmsloftið. Mögulegt er að nýta þetta jarðgas til að framleiða verðmæt efni og skapa þannig nýjan sjálfbæran lífefnaiðnað hér á landi og auka þar með fjölbreytileika íslensks atvinnulífs.“

Sigurður segir að verið sé að hanna og prófa ýmsa þætti við kerfislíffræðisetrið sem hafi áhrif á afköst og hagkvæmni slíkrar verksmiðju, svo sem ljósstyrk, stærð ræktunarröra, tegundir þörunga o.fl. „Núna er verið að byggja frumgerð að slíkri verksmiðju. Afurðir verksmiðjunnar verða ýmis fæðubótarefni og önnur verðmæt efni fyrir annan iðnað, eins og t.d. lyfjaiðnað,“ segir Sigurður.

„Það er mjög áhugavert að tengja saman fræðasvið eins og vélaverkfræði, líffræði og læknisfræði,“ svarar Sigurður spurningum um tilgang samþættingar ólíkra vísindasviða í rannsóknunum. „Þróun lífefnaverksmiðju tengir mjög vel saman líffræði og verkfræði. Við búum í flóknum heimi og nauðsynlegt er að mismunandi fræðasvið vinni saman við lausn þeirra stóru vandamála sem blasa við heiminum í dag, í umhverfismálum og við orku- og fæðuöflun mannkyns.“

Sigurður segir að vísindamenn innan rannsóknasetursins hafi birt nokkrar vísindagreinar um niðurstöður rannsóknanna en aðalatriðið sé að finna út hvort unnt sé að hanna og reisa hagkvæma og sjálfbæra lífefnaverksmiðju.

„Sjálfbær lífefnaiðnaður með örverum er nokkuð nýr af nálinni. Það er mikilvægt fyrir samfélagið að huga að sjálfbærni og er þetta liður í því.“