Þórhildur Ólafsdóttir, doktorsnemi við Hagfræðideild
„Í rannsókninni er metið hvort og með hvaða hætti efnahagskreppan hafði áhrif á neyslu áfengis og tóbaks og er þá einkum litið til hlutverks vinnumarkaðsbreytinga, þ.e. fækkunar vinnustunda og lækkunar rauntekna. Slíkar vinnumarkaðsbreytingar geta haft áhrif á heilsutengda hegðun, þ.e. hvernig fólk fjárfestir í heilsu sinni í nútíð og framtíð,“ segir Þórhildur Ólafsdóttir, doktorsnemi í hagfræði, um rannsókn sem er hluti af doktorsverkefni hennar.
Þórhildur Ólafsdóttir
„Í rannsókninni er metið hvort og með hvaða hætti efnahagskreppan hafði áhrif á neyslu áfengis og tóbaks og er þá einkum litið til hlutverks vinnumarkaðsbreytinga, þ.e. fækkunar vinnustunda og lækkunar rauntekna.“

Þórhildur bendir á að nýlegar erlendar rannsóknir sýni að líkamleg heilsa fólks batni á margan hátt í efnahagslægðum. „Breytt heilsuhegðun, eins og þegar neysla áfengis og tóbaks dregst saman, gæti verið ein af undirliggjandi skýringum á því sambandi,“ segir Þórhildur. Hún fékk tækifæri til þess að rannsaka þessi tengsl hérlendis með því að nota gögn úr póstkönnuninni Heilsa og líðan Íslendinga, sem var gerð fyrir og eftir hrun, árin 2007 og 2009.
„Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að lækkun rauntekna og fækkun vinnustunda skýra aðeins að hluta til þann samdrátt á áfengisneyslu sem kemur í ljós frá árinu 2007 til ársins 2009. Þessi áhrif eru meiri hjá konum en körlum, konur eru næmari fyrir breytingum á tekjum og vinnustundum en karlar í þessu samhengi. Fækkun þeirra sem reykja skýrist hins vegar ekki með vinnumarkaðsbreytingum heldur vega þættir eins og hækkun á verði tóbaks vegna gengislækkunar í kjölfar efnahagshrunsins þyngra,“ bendir Þórhildur á. Því megi álykta að í kjölfar hrunsins hafi fólk breytt áfengis- og tóbaksneyslu sinni vegna verðhækkana frekar en að skýringin felist í því að fólk hafi haft meiri tíma aflögu en áður til þess að huga að heilsunni.
Rannsóknin er á sviði heilsuhagfræði og að sögn Þórhildar eykur hún þekkingu í greininni á samspili efnahagsumhverfis og heilsu. „Hagnýting rannsóknarinnar felst í því að skilja betur hvaða þættir í breyttu efnahagsumhverfi hafa helst áhrif á þá heilsutengdu hegðun sem hér var til skoðunar: reykingar og áfengisneyslu,“ segir Þórhildur að lokum.
Leiðbeinandi: Tinna Laufey Ásgeirsdóttir, lektor við Hagfræðideild.