Hanna Björg Sigurjónsdóttir, dósent við Félags- og mannvísindadeild
„Kveikjuna að verkefninu og ástæðuna fyrir vali þess má rekja til þess að komið hefur í ljós að síðastliðinn áratug hefur enginn blindur nemandi lokið námi frá Háskóla Íslands,“ segir Hanna Björg Sigurjónsdóttir, dósent við Félags- og mannvísindadeild. „Möguleikar blindra og sjónskertra til að stunda háskólanám á Íslandi virðast takmarkaðir og þeir sem hófu nám en luku því ekki töldu að nauðsynleg stuðningsúrræði vantaði.“
Hanna Björg vinnur nú ásamt Knúti Birgissyni, doktorsnema í fötlunarfræði, að rannsókn sem miðar að því að afla þekkingar og skilnings á þeim þáttum sem ýmist gagnast blindum og sjónskertum við að leggja stund á háskólanám eða eru þeim hindrun í námi.
Hanna Björg Sigurjónsdóttir
„Möguleikar blindra og sjónskertra til að stunda háskólanám á Íslandi virðast takmarkaðir og þeir sem hófu nám en luku því ekki töldu að nauðsynleg stuðningsúrræði vantaði.“

Að sögn Hönnu Bjargar benda fyrstu niðurstöður til að viðhorf kennara og annars starfsfólks til blindra og sjónskertra nemenda séu almennt jákvæð og að skilningur og vilji sé til frekari úrbóta. „Samt sem áður vantar enn talsvert á að aðstæður og aðbúnaður séu fullnægjandi. Víða er manngert umhverfi illa aðgengilegt, t.d. vantar leiðarlínur og öryggisþáttum er ábótavant. Nauðsynleg stuðningsúrræði vantar og aðstoðarmannakerfið er ekki nægilega öflugt. Kennsluhættir eru mismunandi eftir deildum og yfirleitt er ekki gert sérstaklega ráð fyrir blindum og sjónskertum nemendum,“ segir Hanna Björg.
Gildi verkefnisins felst í aukinni þekkingu og dýpri skilningi á aðstæðum blindra og sjónskertra háskólanema og þeim fjölmörgu hindrunum sem þeir þurfa að yfirstíga til að ljúka námi, nauðsynlegum stuðningsúrræðum og betri kennsluháttum.
„Niðurstöður rannsóknarinnar munu nýtast víða en forsvarsmenn hagsmunasamtaka fatlaðs fólks hafa lengi bent á að aukin menntun, sérstaklega háskólamenntun, sé grunnforsenda þess að árangur náist í baráttunni fyrir því að fatlað fólk nái jafnri stöðu og tækifærum á við aðra í samfélaginu. Því er bætt aðgengi að háskólum landsins á jafnréttis- og jafnræðisgrunni nauðsyn,“ segir Hanna Björg að lokum.