Skip to main content

Fyrsta kauphöll sinnar tegundar

Guðlaugur Lárus Finnbogason, MS-nemi við Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild

Guðlaugur L. Finnbogason, meistaranemi í tölvunarfræði, og Jóhann P. Malmquist, prófessor í tölvunarfræði, stofnuðu fyrirtækið Viral Trade ehf. í maí 2012. Fyrirtækið hefur búið til frumgerð að kauphöll sem aðstoðar fólk við að kaupa og selja stafræna gjaldmiðla og stafrænar eignir. „Þessi tegund af gjaldmiðlum er ekki gefin út af seðlabanka heldur á hún upptök sín í stafrænum hagkerfum eins og í tölvuleikjum. Það útheimtir tíma og vinnu að afla þessara gjaldmiðla í tölvu- leikjum og því er fólk tilbúið að kaupa þá fyrir raunverulegan gjaldmiðil eins og dollara,“ segir Guðlaugur.

Guðlaugur Lárus Finnbogason

Fyrirtæki Guðlaugs, Viral Trade ehf., hefur búið til frumgerð að kauphöll sem aðstoðar fólk við að kaupa og selja stafræna gjaldmiðla og stafrænar eignir.

Guðlaugur Lárus Finnbogason

Hugmyndin um kauphöllina kviknaði þegar Guðlaugur var að ljúka BA-prófi í hagfræði. „Það gerðist ekkert rosalega mikið fyrr en ég tók áfanga sem heitir „Frá hugmynd að veruleika“ og þar bjó ég til fyrstu viðskiptaáætlunina fyrir þetta,“ segir Guðlaugur en kennsla þar var í höndum Jóhanns. Eftir tveggja ára endurbætur breyttist hugmyndin og áætlunin en þá fóru hjólin að snúast. Viral Trade hreppti annað sætið í frumkvöðlakeppninni Gullegginu 2012 og hefur fengið styrk frá Nýsköpunarmiðstöð Íslands. „Við höfum gert heilmargar rannsóknir og erum með góða inngangsáætlun inn á markaðinn,“ segir Guðlaugur.

„Markaðurinn er ungur og gengur mestmegnis út á heimasíður þar sem smásalar hafa milligöngu um kaup og sölu inni í leikjum og taka 40% fyrir. Kauphöllin á að vera skiptimarkaður þar sem einstaklingar geta keypt og selt sín á milli í leikjum og greitt fyrir án þess að þurfa að fara í gegnum milliliði,“ útskýrir Guðlaugur.

Stefnt er að því að opna kauphöllina á Netinu seint á árinu 2013. „Hún verður sett inn í skrefum, fyrst með gjaldmiðla og síðan verður sett viðbót þar sem fólk getur keypt og selt leikjareikninga. Markmið okkar er að þetta verði ekki einungis kauphöll fyrir stafrænar eignir og stafræna gjaldmiðla í tölvuleikjum heldur stafrænar eignir yfir höfuð. Þetta er bara byrjunin,“ segir Guðlaugur.

Leiðbeinandi: Jóhann P. Malmquist, prófessor við Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild