Skip to main content

Sjálfbær ferðamennska á viðkvæmum svæðum

Harald Josef Schaller, doktorsnemi við Líf- og umhverfisvísindadeild

„Verkefni mitt snýst um að meta áhrif ferðamennsku á friðlýstum svæðum með sérstakri áherslu á hálendissvæði sem einkennast af viðkvæmum vistkerfum. Ég einbeiti mér sérstaklega að umhverfis-, félags- og efnahagslegum áhrifum. Hvernig getum við náð og viðhaldið sjálfbærri ferðamennsku á viðkvæmum svæðum? Þessi spurning er mjög mikilvæg fyrir Íslendinga,“ segir Harald Josef Schaller, doktorsnemi í landfræði.

Harald Josef Schaller 

Verkefnið er flókið og þátttaka hagsmunaaðila er nauðsynleg. „Skemmdir af völdum ferðamanna hafa þegar orðið á Íslandi en með þeirri nálgun að stjórna með málamiðlunum milli hagsmunaaðila er enn von til þess að atvinnugreinin verði sjálfbær til framtíðar.“

Harald Josef Schaller

Verkefnið er flókið og þátttaka hagsmunaaðila er nauðsynleg. „Skemmdir af völdum ferðamanna hafa þegar orðið á Íslandi en með þeirri nálgun að stjórna með málamiðlunum milli hagsmunaaðila er enn von til þess að atvinnugreinin verði sjálfbær til framtíðar.“

Harald segir að flókin úrlausnarefni samfélagsins veki áhuga sinn og að námið hafi veitt honum tækifæri til þess að gera tilraun til að leysa þau af betri skilningi en hann hafi getað áður. Hann var einn þeirra sem hlaut styrk úr Styrktarsjóði Watanabe árið 2011 og það gerði honum kleift að stunda rannsóknir við Hokkaido-háskóla um tíma. „Á friðlýstum svæðum í norðurhluta Japans er við sama vandamál að etja og á Íslandi. Rannsóknardvölin þar veitti mér því tækifæri til þess að bera saman löndin tvö.“

Hann segist alla tíð hafa haft áhuga á umhverfi sínu. „Ég ólst upp í bæverskri sveit í Þýskalandi. Ég fer í fjallgöngur mér til ánægju og það að hafa alist upp á búgarði ættingja minna færði mig nær náttúrunni. Það að nema landfræði var náttúrulegt framhald af því sem þegar skipti mig miklu máli.“

Hinn þýskættaði doktorsnemi kom fyrst til Íslands árið 2006, þá sem skiptinemi, en frá ársbyrjun 2008 hefur hann stundað nám hérlendis. „Að læra á Íslandi hefur verið frábært, ekki eingöngu vegna fallega landslagsins, eða framúrskarandi rannsóknatækifæra heldur líka vegna möguleika á því að skapa einstakan starfsferil.“

Leiðbeinandi: Rannveig Ólafsdóttir, dósent við Líf- og umhverfisvísindadeild.