Sæþór Ásgeirsson, MS-nemi við Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild
Hin fræga sögupersóna spænska rithöfundarins Cervantes, Don Kíkóti frá La Mancha, barðist hetjulega við vindmyllur. Hann hafði lesið yfir sig af riddarasögum og hélt út í heiminn með það veganesti að þar biðu hans fjandsamlegir keppinautar og ótvíræð ævintýri. Andstæðingarnir reyndust hins vegar vindmyllur þegar öllu var á botninn hvolft. Viðfangsefni Sæþórs Ásgeirssonar eru líka vindmyllur en með nokkuð öðrum hætti en hjá Don Kíkóta. Sæþór hefur flutt nokkur erindi um vindmyllur í vetur en í máli sínu hefur hann bent á kosti þess að kljást við þær og nýta til að framleiða rafmagn.
Sæþór Ásgeirsson
„Vindmyllan er hönnuð til að falla inn í umhverfið, vera sem minnst áberandi og fram - leiða rafmagn þótt vindur sé mjög lítill, auk þess að vera nær þögul.“

Erindi Sæþórs byggjast á hugmyndinni um að þróa og markaðssetja litla aflstöð sem vindmyllan knýr og hentar íslenskum aðstæðum. Við hönnun vindmyllunnar var haft í huga að hún væri ódýr, endingargóð og liti þannig út að sem flestir gætu sætt sig við hana. „Vindmyllan er hönnuð til að falla inn í umhverfið, vera sem minnst áberandi og fram - leiða rafmagn þótt vindur sé mjög lítill, auk þess að vera nær þögul,“ segir Sæþór um þetta hugarfóstur sitt en hönnun vindmyllunnar er hluti af verkefni hans í vélaverkfræði.
„Þetta byrjaði sem vindhraðamælir í áfanga sem kallast Tölvustýrður vélbúnaður. Þar fengum við verkefnið að hanna og smíða vindhraðamæli og máttum gera það sem við vildum. Eftir áfangann vatt verkefnið hratt upp á sig og farið var út í frekari frumgerðasmíði og prófanir sem staðið hafa yfir síðan 2007 með góðum árangri,“ segir Sæþór. Hann bætir því við að prófanir hafi gengið vel síðastliðin ár. Fyrirtækið Icewind var stofnað í fyrra með það fyrir augum að hefja framleiðslu og sölu á vindmyllunni, bæði hér heima og erlendis. Að sögn Sæþórs henta vindmyllurnar fyrir sumarhús, bóndabæi og jafnvel heimili.
„Áhugi minn á endurnýjanlegri orku og orkunýtingu hvatti mig áfram í þessu verkefni en í námi mínu hér og erlendis hef ég komið að þáttum sem snerta allt frá jarðvarma og vetni yfir í kjarnorkuverkfræði. Vindmylluverkefnið sjálft gæti opnað nýjar dyr hér á landi við að þróa vindmyllur af ýmsum gerðum fyrir stærri markað, auk þess sem það eykur þekkingu í fræðasamfélaginu okkar.“
Leiðbeinandi: Rúnar Unnþórsson, lektor við Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild.