Skip to main content

Fordómar gagnvart erlendum fótboltamönnum

Arnhildur Hálfdánardóttir, MA-nemi við Félags- og mannvísindadeild

Hvort fótboltamenn af erlendum uppruna upplifi fordóma eða mismunun tengda knattspyrnuiðkun á Íslandi var rannsóknarefni Arnhildar Hálfdánardóttur, meistaranema í blaða- og fréttamennsku og BA í mannfræði, sumarið 2012 en hún naut styrks frá Nýsköpunarsjóði námsmanna.

„Það er mjög erfitt að rannsaka fordóma og því beitti ég bæði eigindlegri og megindlegri nálgun. Sú hefð hefur skapast að íslensk knattspyrnulið ráði til sín erlendan liðsauka. Allir erlendir leikmenn með íslenskum liðum í Pepsídeildinni og 1., 2. og 3. deild karla og kvenna fengu sendan spurningalista en samtals 200 erlendir leikmenn léku í deildunum síðasta sumar. Auk þess voru tekin djúpviðtöl við tíu leikmenn.“

Arnhildur Hálfdánardóttir

„Þriðjungur þátttakenda hafði upplifað fordóma, líkt og þeir voru skilgreindir í rannsókninni. Mjög lítill hluti hafði upplifað tíða eða alvarlega fordóma.“

Arnhildur Hálfdánardóttir

Arnhildur segir að umræða um fordóma og mismunun innan knattspyrnuhreyfingarinnar hafi verið áberandi upp á síðkastið. „Ýmsar herferðir hafa verið farnar gegn fordómum innan íþróttarinnar. Mér lék forvitni á að vita hvort fordómar gagnvart erlendum leikmönnum væru til staðar og hvernig þeir birtust helst ef svo væri.“

Í niðurstöðum Arnhildar kemur fram að meirihluti þeirra erlendu leikmanna sem tók þátt í rannsókninni lýsti jákvæðum upplifunum og taldi sig hvorki hafa orðið fyrir fordómum né mismunun. „Þriðjungur þátttakenda hafði upplifað fordóma, líkt og þeir voru skilgreindir í rannsókninni. Mjög lítill hluti hafði upplifað tíða eða alvarlega fordóma. Djúpviðtölin veittu góða innsýn í reynsluheim viðmælenda en flestir lýstu yfir ánægju með félag sitt og dvölina. Þá lýstu margir misskilningi og tungumálaörðugleikum. Þrír lýstu alvarlegum fordómum eins og niðurlægjandi hrópum, einelti og barsmíðum í kjölfar níðingshrópanna.“

Arnhildur segir að rannsóknin stuðli að auknum skilningi á aðstæðum erlendra leikmanna á Íslandi. „Upplýsingarnar sem rannsóknin veitir getur nýst bæði KSÍ og aðildarfélögum þess og hjálpað þeim í baráttu gegn fordómum.“

Leiðbeinendur: Elsa Arnardóttir og Ari Klængur Jónsson hjá Fjölmenningarsetri.