Skip to main content

Bættir starfshættir á íslenskum fiskmörkuðum

Gígja Eyjólfsdóttir, MS frá Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild

„Íslenskar sjávarafurðir eru með þeim eftirsóknarverðustu í heiminum í dag og óhætt er að segja að Íslendingar séu frumkvöðlar á mörgum sviðum í greininni. Það var því spennandi að taka þátt í því að stuðla að nýjungum og tækninýtingu í starfsemi með sjávarafurðir,“ segir Gígja Eyjólfsdóttir, MS í iðnaðarverkfræði, um meistaraverkefni sitt sem fólst í úttekt á starfsháttum á íslenskum fiskmörkuðum.

Forsaga verkefnisins er sú að forsvarsmenn fiskmarkaðanna leituðu til Matís eftir aðstoð við verkefnið. Þar sem Gígja var að leita að lokaverkefni og þekkti til fiskiðnaðarins ákvað hún að taka verkið að sér. „Það fólst m.a. í að koma auga á og greina hvaða þjónustu og upplýsingum þeir hagsmunaaðilar sem skipta við fiskmarkaði þurfa mest á að halda,“ segir Gígja.

Gígja Eyjólfsdóttir

Meistaraverkefni Gígju fólst í úttekt á starfsháttum á íslenskum fiskmörkuðum.

Gígja Eyjólfsdóttir

Aðspurð um niðurstöður rannsóknarinnar segir Gígja að þær hafi sýnt að fiskmarkaðir hafi lagt mikla vinnu í að sinna starfsemi sinni vel en þar sé jafnframt kostur á að gera enn betur. „Aðstæður á fiskmörkuðum hafa breyst mikið í áranna rás og þrátt fyrir bætta starfshætti og tillögur til þess að tengja betur verð og gæði er staðreyndin sú að enn hefur framboð úrslitaáhrif á verðmyndun,“ segir Gígja.

Hún bendir á að Reiknistofa fiskmarkaða hf. hafi tekið upp nýtt tölvukerfi á árinu 2012 og þar sé hægt að geyma og birta ýmsar upplýsingar sem áður var ekki mögulegt. „Með niðurstöðum rannsóknarinnar má nýta nýja kerfið á gagnlegan hátt til þess að auka verðmæti og hagræði fyrir útgerðir, fiskverkendur, smásala, eftirlitsaðila og aðra sem hafa skyldum að gegna og hagsmuna að gæta gagnvart verðmætasköpun í sjávarútvegi á Íslandi,“ segir Gígja að lokum.

Leiðbeinendur: Gunnar Stefánsson, prófessor við Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild, Sigurjón Arason, prófessor við Matvæla- og næringarfræðideild, Sveinn Margeirs- son, forstjóri Matís, Jónas Rúnar Viðarsson, fagstjóri hjá Matís, og Páll Jensson, prófessor við Háskólann í Reykjavík.

Gígja lauk meistaraprófi frá Háskóla Íslands árið 2012.