Skip to main content

Náttúran sem leiksvið

Sara Hauksdóttir, M.Ed. frá Kennaradeild

„Viðfangsefnið í þessu verkefni er sprottið af áhuga mínum á skapandi skólastarfi. Þegar börn fá tækifæri til að læra í gegnum leiklist og skapandi starf og samfélagið utan skólans er virkur hluti af námsumhverfi þeirra, má leiða að því líkur að skólinn og samfélagið myndi eina heild þar sem nemandinn er virkur þátttakandi,“ segir Sara Hauksdóttir, sem lauk meistaraprófi í náms- og kennslufræði síðastliðið sumar.

Sara Hauksdóttir

Í lokaverkefni sínu vann Sara kennsluefni fyrir átta til níu ára gömul börn þar sem sex grunnþættir íslenskrar menntastefnu, ásamt leiklist og útinámi, voru hafðir að leiðarljósi.

Sara Hauksdóttir

Í lokaverkefni sínu vann Sara kennsluefni fyrir átta til níu ára gömul börn þar sem sex grunnþættir íslenskrar menntastefnu, ásamt leiklist og útinámi, voru hafðir að leiðarljósi. „Grunnþættirnir eru jafnrétti, lýðræði og mannréttindi, læsi í víðum skilningi, heilbrigði og velferð, sköpun og menntun til sjálfbærni. Markmiðið með verkefninu var að varpa ljósi á mikilvægi þess að samþætta grunnþættina sex sem heild með skapandi starfi, leiklist og útinámi. Jafnframt vildi ég undirstrika hvernig sú samþætting styður nám og þroska nemenda þar sem hver og einn fær tækifæri til að njóta sín í námi á eigin forsendum,“ segir Sara.

Hún bætir við að kennsluefnið hafi það að markmiði að skapa svigrúm fyrir nemendur til að nema í gegnum huga og hönd. „Viðfangsefni kennsluefnisins er goðsögnin um frumefnin fjögur: jörð, eld, loft og vatn. Þar er að finna frumsamið ævintýri þar sem frumefnin fjögur eru ofin inn í söguþráðinn,“ segir Sara.

Aðspurð segir hún hluta kennsluefnisins hafa verið prófaðan á vettvangi og bendir á að þó að efnið sé samið með átta til níu ára gömul börn í huga megi auðveldlega aðlaga það öðrum aldurshópum og skólastigum.

Leiðbeinendur: Ása Ragnarsdóttir, aðjunkt við Kennaradeild, og Jakob Frímann Þorsteinsson, aðjunkt við Íþrótta-, tómstunda- og þroskaþjálfadeild.