Skip to main content

Nemendum úr ríkisháskóla boðin hærri laun

Tinna Dahl Christiansen, MS frá Viðskiptafræðideild

Lokaverkefni Tinnu Dahl Christiansen úr meistaranámi í stjórnun og stefnumótun miðaði að því að rannsaka hvort námsárangur og val á skóla skipti máli þegar kæmi að ráðningar- og launaákvörðunum hjá mannauðsstjórum stærstu fyrirtækja á Íslandi. Hún gerði ferilskrárrannsókn þar sem umsækjendur voru með viðskiptafræðimenntun frá Háskólanum í Reykjavík eða Háskóla Íslands annars vegar og með háa eða lága meðaleinkunn hins vegar.

„Ég hef reynslu af bæði einka- og ríkisháskóla og hef fundið greinilegan ríg á milli nemenda um gæði skólanna. Mér fannst því áhugavert að rannsaka hvort nemendur væru metnir mismunandi þegar komið væri út á vinnumarkaðinn eða hvort þetta væru einungis getgátur þeirra,“ segir hún. Tinna vildi bæði rannsaka hvort það borgaði sig fyrir nemendur að greiða há skólagjöld sem fylgja einkaháskólum og hvort umbunað væri á vinnumarkaði fyrir góðan námsárangur.

Tinna Dahl Christiansen

„Ég hef reynslu af bæði einka- og ríkisháskóla og hef fundið greinilegan ríg á milli nemenda um gæði skólanna. Mér fannst því áhugavert að rannsaka hvort nemendur væru metnir mismunandi þegar komið væri út á vinnumarkaðinn eða hvort þetta væru einungis getgátur þeirra.“

Tinna Dahl Christiansen

Samkvæmt niðurstöðum hennar reyndust mannauðsstjórar hvorki meta nemendur úr einkaháskólanum hæfari en hina – né öfugt – og þeir eru heldur ekki líklegri til þess að bjóða nemendum úr öðrum hópnum fremur en hinum í atvinnuviðtal eða ráða þá. „Mannauðsstjórarnir voru þó tilbúnir að bjóða nemanda úr ríkisháskólanum 9,8% hærri laun en hinum. Þá mátu þeir umsækjanda með háa meðaleinkunn hæfari en umsækjanda með lága meðaleinkunn og voru líklegri til þess að bjóða honum í viðtal og jafnframt ráða hann. Meðaleinkunn hafði hins vegar ekki áhrif á fyrsta launatilboð.“

Tinna segir að niðurstöður rannsóknar sinnar komi meðal annars til með að nýtast þeim sem eru að velja á milli ríkis- og einkaháskóla, núverandi námsmönnum og einnig háskólunum í því skyni að meta hvort nemendur þeirra séu samkeppnishæfir á markaði.

Leiðbeinandi: Kári Kristinsson, lektor við Viðskiptafræðideild.