Ásþór Tryggvi Steinþórsson og Þóroddur Björnsson, BS frá Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild, og Rúnar Unnþórsson, lektor við Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild
Verkfræðinemendurnir Ásþór Tryggvi Steinþórsson og Þóroddur Björnsson unnu á síðasta ári spennandi verkefni sem miðar að því að auka öryggi ferðamanna á hálendi Íslands. Verkefnið var styrkt af Nýsköpunarsjóði námsmanna og unnið undir leiðsögn Rúnars Unnþórssonar, lektors í vélaverkfræði. „Verkefnið snerist um að nýta snjallsíma til aðauðvelda björgunarsveitum leitina að týndum ferðamönnum,“ segir Ásþór.
Rúnar bendir á að veðurupplýsingar á Íslandi séu mikið öryggisatriði sem huga beri að. Til að mynda sé oft gott veður í byggð en slæmt á fjöllum og útlendingar átti sig oft ekki á þessu. Því hafa þeir Ásþór og Þóroddur kynnst vel.
Ásþór Tryggvi Steinþórsson og Þóroddur Björnsson
„Kveikjan að þessu verkefni var ferð okkar á Fimmvörðuháls. Þar mættum við illa útbúnum hópi göngufólks. Seinna um daginn kom óveður sem varð til þess að koma þurfti fólki til bjargar á Fimmvörðuhálsi.“

„Kveikjan að þessu verkefni var ferð okkar á Fimmvörðuháls. Þar mættum við illa útbúnum hópi göngufólks. Seinna um daginn kom óveður sem varð til þess að koma þurfti fólki til bjargar á Fimmvörðuhálsi. Í framhaldi af þessu fengum við þá hugmynd að brúa bilið milli týndra ferðamanna og björgunarsveita,“ segir Þóroddur.
Sjálfur hafði Rúnar fengið þá hugmynd að hægt yrði að veita ferðalöngum á Íslandi upplýsingar um hvað væri áhugavert að sjá á hverjum stað, t.d. með því að senda upplýsingar í síma, og féll þessi hugmynd vel að verkefni Ásþórs og Þórodds. „Hannað var snjallsímaforrit fyrir Android- snjallsíma sem er með innbyggt GPS-kerfi. Snjallsímaforritið sendir því sjálfvirkt GPS-hnit og þar með fæst GPS-slóði sem á að geta hjálpað björgunarsveitarmönnum að afmarka leitarsvæði betur en út frá þeim upplýsingum sem þeir hafa í dag,“ segir Ásþór.
Þróun forritsins er þó ekki lokið að sögn Rúnars. „Endurbætur á snjallsímaforritinu, t.d. með upplýsingaveitu um veður og áhugaverða staði, ættu að gera smáforritið áhugavert fyrir innlenda sem erlenda ferðamenn og í leiðinni stuðla að því að gera Ísland að öruggari og ákjósanlegri ferðamannastað en það er nú,“ segir Rúnar að lokum.
Ásþór og Þóroddur luku BS prófi frá Háskóla Íslands árið 2012.