Hulda Þórisdóttir, lektor við Stjórnmálafræðideild
„Rannsóknin mín snýst um að auka við skilning okkar og þekkingu á sambandi tilfinninga og viðhorfa, einkum stjórnmálaviðhorfa. Nánar tiltekið skoða ég samband hinnar lítt rannsökuðu jákvæðu tilfinningar samkenndar og stjórnmálaviðhorfa.“ Þetta segir Hulda Þórisdóttir, lektor í stjórnmálafræði, en hún hefur vakið athygli fyrir að beita aðferðum sálfræðinnar til að skilja betur stjórnmálahegðun fólks.
Hulda segist vonast til þess að niðurstöður úr þessari rannsókn sinni leggi lóð á vogarskálarnar í þeirri viðleitni okkar að skilja betur hvernig tilfinningar og rökhugsun vinna saman að því að móta stjórnmálaafstöðu okkar.
Hulda Þórisdóttir
„Áhugi minn á því hvernig tilfinningar, skammvinnar jafnt sem langvinnar, gætu haft áhrif á stjórnmálaviðhorf kviknaði þegar ég var nýflutt til New York og ég varð vitni að því þegar Tvíburaturnarnir brunnu og hinum pólitíska hildarleik sem fylgdi í kjölfarið.“

„Áhugi minn á því hvernig tilfinningar, skammvinnar jafnt sem langvinnar, gætu haft áhrif á stjórnmálaviðhorf kviknaði þegar ég var nýflutt til New York og ég varð vitni að því þegar Tvíburaturnarnir brunnu og hinum pólitíska hildarleik sem fylgdi í kjölfarið. Þá var hræðsluáróðurinn yfirgengilegur. Mér þótti merkilegt að sjá hvaða áhrif óttinn sem fólk upplifði hafði á stjórnmálaskoðanir, þ.e.a.s. hvernig ótti virtist gera fólk íhaldssamara,“ segir Hulda, sem lauk doktorsprófi frá New York háskóla árið 2007 í félagslegri sálfræði með tölfræðilega sálfræði sem undirgrein.
Í ritgerð sinni vestanhafs fékkst hún við óttann og kvíðann sem tengdist rótinu eftir árásina á Tvíburaturnana. Eftir að heim var komið fannst henni tími til kominn að snúa sér að einhverju jákvæðara.
Tilfinningar leika að mati Huldu stórt hlutverk í ákvörðunum fólks og ekki síst þegar það ákveður að styðja tilteknar pólitískar fylkingar eða tiltekna efnahagsstefnu.
„Áður fyrr voru tilfinningar taldar standa í vegi fyrir röklegri hugsun og ákvarðanatöku. Rannsóknir á fólki þar sem heilastöðvarnar sem vinna úr tilfinningum hafa skaddast, hafa leitt í ljós að án tilfinninga tökum við mun síðri ákvarðanir en ella.“
Hulda segir að fyrstu niðurstöður úr rannsókninni séu komnar í hús. „Nái ég að vekja samkennd með þátttakendum í tilraunum mínum virðast þeir frekar aðhyllast skoðanir á efnahagsmálum sem að jafnaði eru tengdar við vinstri stefnu frekar en hægri.“