Skip to main content

Er sveitin sæla?

Anna Dórothea Tryggvadóttir, M.Ed.-nemi við Kennaradeild

Anna Dórothea Tryggvadóttir fór aldrei í sveit en ákvað að rannsaka þennan sið sem heyrir nú fortíðinni til að mestu. Í B.Ed.-ritgerð sinni, Vinna er lasta vörn: vinna og skólaganga barna og unglinga á 20. öld, rannsakaði hún m.a. sveitardvöl fjögurra einstaklinga.

Anna tók viðtöl við fjórar manneskjur sem hún þekkti persónulega. Tvær þeirra fóru í sveit að frumkvæði foreldra sinna og hjá einum viðmælendanna þróaðist sveitardvölin út frá heimsóknum sem svo lengdust. Ein þeirra sem Anna ræddi við bað sjálf um að fá að fara í sveit og var það sú sem hafði verstu söguna að segja af reynslu sinni úr sveitinni. „Henni var ætluð rosalega mikil vinna og upplifði þetta sem þrældóm. Viðmót húsfreyjunnar var heldur ekki til að hjálpa. Engum myndi detta í hug að þræla ellefu ára barni svona út í dag og það er ekki eins og þetta hafi verið á 18. öld,“ segir Anna.

Anna Dórothea Tryggvadóttir

Anna fór aldrei í sveit en ákvað að rannsaka þennan sið sem heyrir nú fortíðinni til að mestu. Í B.Ed.-ritgerð sinni, Vinna er lasta vörn: vinna og skólaganga barna og unglinga á 20. öld, rannsakaði hún m.a. sveitardvöl fjögurra einstaklinga.

Anna Dórothea Tryggvadóttir

Sveitardvöl þessa viðmælanda varð því aðeins brot úr sumri. Hin hafa hins vegar allt aðra sögu að segja. „Þau upplifðu þetta sem frelsi, þeim fannst gaman að umgangast dýr og taka þátt í störfum á bænum. Þau lærðu vinnusiðferði sem þau búa enn að,“ segir Anna.

Þó að Anna hafi þekkt til viðmælendanna kom upplifun þeirra af sveitardvölinni henni á óvart. „Ég hafði ekki áttað mig á því hvað þau voru ofsalega ánægð, þessi þrjú. Ef hægt er að tala um að eitthvað hafi verið óvænt í niðurstöðunum er það hversu óhemjuánægð þau voru.“

Þessi siður er nú að mestu aflagður, að minnsta kosti að krakkar séu sendir til ókunnugra, eins og tíðkaðist áður. „Landbúnaðurinn hefur breyst svo mikið að það er ekki þörf fyrir þessa snúningakrakka. Áður var þetta beggja hagur því að bændurnir nutu góðs af og krakkarnir nutu þess að fara í sveit,“ segir Anna.

Leiðbeinandi: Ólöf Garðarsdóttir, prófessor við Kennaradeild.