Skip to main content

Hannaði smáforrit til hljóðfærakennslu

Hilmar Þór Birgisson, MS frá Rafmagns- og tölvuverkfræðideild

Smáforrit eða öpp fyrir farsíma og spjaldtölvur njóta sífellt meiri vinsælda enda geta þau mörg hver einfaldað ýmsa þætti daglegs lífs. Skortur á hjálparforritum við hljóðfærakennslu varð kveikjan að meistaraverkefni Hilmars Þórs Birgissonar í rafmagns- og tölvuverkfræði en hann hannaði, ásamt leiðbeinendum sínum, smáforrit sem greinir tóna.

„Forritið ber kennsl á þá tóna sem það skynjar og birtir niðurstöður í formi nótna á nótnalínum. Svo er hægt að fá meiri upplýsingar um hverja nótu og hvernig spila má hana á viðkomandi hljóðfæri,“ útskýrir Hilmar og bendir á að kerfið geti m.a. gagnast byrjendum við að læra og greina tónbil og lesa nótnaskrift.

Hilmar Þór Birgisson

„Forritið ber kennsl á þá tóna sem það skynjar og birtir niðurstöður í formi nótna á nótnalínum. Svo er hægt að fá meiri upplýsingar um hverja nótu og hvernig spila má hana á viðkomandi hljóðfæri.“

Hilmar Þór Birgisson

Hugmyndin að smáforritinu hafnaði í öðru sæti þegar hagnýtingarverðlaun Háskóla Íslands voru veitt haustið 2012. Í umsögn dómnefndar sagði að hugmyndin væri frumleg og dæmi um hagnýtingu þar sem saman færu vel útfærð viðskiptahugmynd og rannsóknir innan háskólans.

Hilmar segir aðspurður að þróun forritsins sé ekki lokið en niðurstöðurnar úr meistaraverkefninu lofi góðu. „Forritið náði vel að fylgja eftir nótum í einföldum laglínum sem voru spilaðar bæði á píanó og flautu. Villur voru afar sjaldgæfar og skeikaði þá mjög litlu. Taktur var þó meira vandamál og það atriði er vert að skoða betur,“ segir Hilmar og bætir við: „Stefnan er að gefa út einfalt og þægilegt smáforrit sem á að auðvelda fólki á öllum aldri hljóðfæra- og nótnabilanám.“

Leiðbeinendur: Helgi Þorbergsson og Magnús Örn Úlfarsson, dósentar við Rafmagns- og tölvuverkfræðideild.

Hilmar Þór lauk meistaraprófi frá Háskóla Íslands árið 2012.