Anh-Dao Katrín Tran, doktorsnemi við Menntavísindasvið
„Íslenskt menntakerfi og íslenskt samfélag stendur andspænis þeirri áskorun að undirbúa alla nemendur jafnt undir líf í fjölmenningarsamfélagi. Meiri líkur eru á því að ungir nemendur sem eru af erlendu bergi brotnir flosni upp frá námi en íslenskir samnemendur þeirra,“ segir Anh-Dao Katrín Tran, doktorsnemi við Menntavísindasvið.
Anh-Dao er sjálf flóttamaður frá Víetnam. Doktorsrannsókn hennar snýst um þróun innflytjendamála meðal víetnamskra ungmenna á menntaskólaaldri. Anh-Dao kynntist íslenskum manni á námsárum sínum í Dartmouth College í Bandaríkjunum og fluttist til Íslands 1984. Frá þeim tíma hefur hún starfað að innflytjendamálum á Íslandi. Árið 2006 hlaut hún riddarakross hinnar íslensku fálkaorðu fyrir störf í þágu nýrra Íslendinga og íslensks fjölmenningarsamfélags. Sama ár hlaut hún einnig sérstaka viðurkenningu frá Barnaheillum, Save the Children Iceland Foundation, fyrir störf í þágu barna og mannréttinda þeirra.
Anh-Dao Katrín Tran
„Íslenskt menntakerfi og íslenskt samfélag stendur andspænis þeirri áskorun að undirbúa alla nemendur jafnt undir líf í fjölmenningarsamfélagi. Meiri líkur eru á því að ungir nemendur sem eru af erlendu bergi brotnir flosni upp frá námi en íslenskir samnemendur þeirra“

Frumniðurstöður rannsóknar Ahn-Dao kalla á grundvallarbreytingu í fræðslumálum á Íslandi almennt. „Beita þarf kennsluefni þannig að það endurspegli fjölmenningarsamfélagið í auknum mæli. Í námskrá þarf að gera gagnrýninni hugsun hærra undir höfði en gert hefur verið, með það fyrir augum að draga úr fordómum. Kennarar þurfa að beita kennsluaðferðum sem ýta undir árangur nemenda sem koma úr ólíkum menningarhópum og að lokum þarf að skapa skólabrag sem stuðlar að sameiginlegri þátttöku allra hagsmunaaðila í þeim tilgangi að tryggja alhliða árangur nemenda,“ segir Ahn-Dao.
Leiðbeinandi: Hanna Ragnarsdóttir, dósent við Uppeldis- og menntunarfræðideild.