Anna Sigríður Ólafsdóttir, dósent við Íþrótta-, tómstunda- og þroskaþjálfadeild
Anna Sigríður Ólafsdóttir, dósent í næringarfræði við Íþrótta-, tómstunda- og þroskaþjálfadeild, stýrir íslenskum hluta Leonardo-verkefnisins eQuity sem ætlað er að auka jafnrétti jaðarhópa í Evrópu til bættrar heilsu. „Grunnhugmyndin með verkefninu er að útbúa evrópskt samskiptanet sem varðar heilsu og næringu og er sérstaklega sniðið að þessum hóp. Tækifærin sem felast í tækninni eru svo ótal mörg og teljum við okkur ná betur til þessa fjölbreytta hóps með hjálp tækninnar en með öðrum ráðum,“ útskýrir Anna Sigríður.
„Við erum í samstarfi við Heilsuskólann á Barnaspítalanum og er ætlunin að þróa efni sem getur nýst í starfi með fjölskyldum barna sem eru of feit. Með því að nota tölvur, síma og nýjustu tækni teljum við okkur auðvelda þessum hópi aðgang að fjölbreyttu efni og sveigjanlegri ráðgjöf sem styður hann í að breyta hegðun sinni og öðlast betra líf. Aðrar þátttökuþjóðir beina spjótum sínum að annars konar verkefnum, eins og mæðravernd innflytjenda og stuðningi við heimilislausa,“ segir Anna Sigríður enn fremur.
Anna Sigríður Ólafsdóttir
Anna segir rannsóknir benda til þess að jaðarhópar í Evrópu eigi við fleiri heilsufars- vandamál að stríða en almennt gengur og gerist, þar á meðal offitu og næringartengda sjúkdóma.

Hún segir rannsóknir benda til þess að jaðarhópar í Evrópu eigi við fleiri heilsufars- vandamál að stríða en almennt gengur og gerist, þar á meðal offitu og næringartengda sjúkdóma. „Í þessum hóp er fólk sem á erfiðara en aðrir íbúar með að skilja heilsutengdar upplýsingar og eiga samskipti við starfsfólk í heilbrigðiskerfinu á skilvirkan hátt, meðal annars vegna skerts heilsulæsis. Það getur aftur leitt til þess að fólk fái ekki viðeigandi meðferð. Með notkun sjónræns efnis ásamt einföldu tungutaki aukast líkurnar á því að fólk skilji heilsutengdar upplýsingar. Þetta einfaldar samskipti þessa hóps við heilbrigðisstarfsfólk,“ segir hún.
„Það er von okkar, sem tökum þátt í verkefninu, að í lok ársins 2013 hafi okkur tekist að þróa efni sem auðveldar heilbrigðisstéttum að veita jaðarhópum þjónustu með uppbyggilegu og hvetjandi fræðsluefni sem jafnframt stuðlar að bættri heilsu. Við vonumst einnig til að geta eflt færni í notkun nýrra miðla í heilsueflingarskyni og komið á öflugu samskiptaneti milli heilbrigðis- starfsfólks í Evrópu. Þannig nýtist best sú öra þróun og þekkingarsköpun sem á sér stað á þessu sviði,“ segir Anna Sigríður.