Skip to main content

Listasaga fyrir grunnskólabörn

Fríða Dís Guðmundsdóttir og Anja Ísabella Lövenholdt, BA-nemar við Íslensku- og menningardeild

Listfræðinemarnir Fríða Dís Guðmundsdóttir og Anja Ísabella Lövenholdt undirbúa útgáfu íslenskrar listasögu fyrir 9–13 ára börn í kjölfar styrks frá Rannís. „Við höfum rannsakað innlent og erlent kennsluefni ætlað börnum og fundið snertifleti ólíkra listgreina. Aðalnámskrá gerir ráð fyrir að nemendur á þessum aldri þekki mismunandi mynddæmi úr íslenskri listasögu þótt engin námsbók svari þeim kröfum. Því er brýn þörf á listasögu sem er börnum aðgengileg,“ segir Fríða Dís og bætir við að skortur á námsefni í listgreinum fyrir börn hafi lengi verið vandamál.

Fríða Dís Guðmundsdóttir

„Við höfum rannsakað innlent og erlent kennsluefni ætlað börnum og fundið snertifleti ólíkra listgreina. Aðalnámskrá gerir ráð fyrir að nemendur á þessum aldri þekki mismunandi mynddæmi úr íslenskri listasögu þótt engin námsbók svari þeim kröfum. Því er brýn þörf á listasögu sem er börnum aðgengileg,“

Fríða Dís Guðmundsdóttir

Anja Ísabella segir að hugmyndin að bókinni hafi kviknað í námi þeirra. „Við ræddum hvernig við vildum nýta námið og komumst að því að við höfum báðar brennandi áhuga á að vinna með börnum.“

Þær útskýra að einungis tvær bækur um íslenska myndlistarsögu hafi komið út. „Hvorug þeirra er aðgengileg börnum,“ segir Fríða Dís og Anja Ísabella bætir við að mikilvægt sé að kynna grunnskólabörnum helstu listaverk og listamenn þjóðarinnar. „Við lögðum ríka áherslu á að finna snertifleti margra listgreina því að það er mikilvægur þáttur í listfræðslu að geta sett myndlist í samhengi við aðrar listir,“ heldur hún áfram.

„Eldfjallið Hekla hefur til dæmis veitt mörgum listamönnum innblástur. Jónas Hallgrímsson orti um það ljóð, Ásgrímur Jónsson málaði af því myndir og Jón Leifs samdi um það tónverk. Listasaga fyrir börn þarf að koma þessu öllu til skila,“ segir Fríða Dís.

Anja Ísabella útskýrir að mikilvægt sé að börn átti sig á því úr hverju list spretti og í hverju starf listamanna sé fólgið. „List speglar oftar en ekki samtíma sinn og nauðsynlegt er að setja slík verk í samhengi. Einnig er brýnt að útskýra hvernig list hefur þróast og hvers vegna.“

Anja Ísabella Lövenholdt