Skip to main content

Ritstýrir alþjóðlegu tímariti

Peter Holbrook, prófessor við Tannlæknadeild

Stór hluti af starfi vísindamannsins er að rita greinar um rannsóknir sínar og fá þær birtar í virtum alþjóðlegum tímaritum. Þar er samkeppnin hörð enda jafnvel allur heimurinn undir. Fáir vísindamenn á Íslandi komast í að ritstýra slíkum tímaritum. Einn þeirra er Peter Holbrook, prófessor við Tannlæknadeild, sem ritstýrir tímaritinu Acta Odontologica Scandinavica. Það er gefið út með tilstyrk tannlæknafélaga og tannlæknaskóla alls staðar á Norðurlöndum.

Peter tók við sem ritstjóri í byrjun árs 2010. „Ég hafði verið einn af aðstoðarritstjórum tímaritsins í nokkur ár þegar ritstjórinn Folke Lagerlöf varð bráðkvaddur. Ég var beðinn um að taka þetta starf að mér tímabundið en var svo skipaður formlega ritstjóri árið 2011,“ segir Peter, sem áður hafði setið í ritstjórn bæði Journal of Dental Research og Tannlæknablaðsins.

Peter Holbrook

Peter ritstýrir tímaritinu Acta Odontologica Scandinavica. Þar er fjallað um allar hliðar tannlæknisfræðinnar og sagt frá nýjum rannsóknum sem spanna allt frá tilraunum með nýja tækni til rannsókna á tannheilsu einstakra þjóðfélagshópa.

Peter Holbrook

Acta Odontologica Scandinavica var sett á fót árið 1939. „Í tímaritinu er fjallað um allar hliðar tannlæknisfræðinnar og sagt frá nýjum rannsóknum sem spanna allt frá tilraunum með nýja tækni til rannsókna á tannheilsu einstakra þjóðfélagshópa,“ segir Peter.

Ritstjórnarstörfin eru krefjandi að sögn Peters enda tímaritið gefið út sex sinnum á ári. „Það berast um 500 greinar á ári. Mitt hlutverk er m.a. að meta þær, senda þær áfram til ritrýningar og taka svo ákvörðun um hvort greinin verður samþykkt eða ekki,“ segir Peter og bætir við að það auki hróður Háskóla Íslands þegar vísindamenn skólans taki að sér störf sem þessi.

Samhliða þessu sinnir Peter eigin rannsóknum en viðurkennir að það sé erfitt samhliða kennslu og ritstjórnarstörfunum. „Ég hef unnið talsvert með Lyfjafræðideild í þróun lyfja til að meðhöndla munnsjúkdóma. Svo er ég að rannsaka munnvatn í tengslum við tannskemmdir, glerungseyðingu og svokallað Sjögren-heilkenni, en það lýsir sér í þrálátum munnþurrki, aðallega hjá sjúklingum með liðagigt og sjálfsofnæmissjúkdóma,“ segir Peter að lokum.