Elín Júlíana Sveinsdóttir, MA frá Félags- og mannvísindadeild
„Mig langaði til að öðlast innsýn í hvernig pólskar konur upplifðu eigin stöðu í íslensku samfélagi, bæði meðan þær voru atvinnulausar og eftir það,“ segir Elín Júlíana Sveinsdóttir, náms- og starfsráðgjafi hjá Mími – símenntun. Vinna hennar með innflytjendum kveikti áhugann á að rannsaka málefni þeirra nánar í náminu við Háskóla Íslands.
Efnahagshrunið árið 2008 leiddi af sér mikið atvinnuleysi, sérstaklega hjá innflytjendum. Í samfélaginu var mikið rætt um fjölda innflytjenda í byggingargeiranum og atvinnuleysi þeirra á meðal. Störfum við þjónustu, framleiðslu og umönnun hafði líka fækkað töluvert en algengt er að erlendar konur sinni þessum störfum. Elín ákvað því í lokaritgerð sinni að beina sjónum sínum að pólskum konum og hvaða afleiðingar þær teldu flutninginn til landsins og atvinnuleysi í kjölfarið hafa haft á náms- og starfsferil þeirra, sem og heilsu.
Elín Júlíana Sveinsdóttir
„Mig langaði til að öðlast innsýn í hvernig pólskar konur upplifðu eigin stöðu í íslensku samfélagi, bæði meðan þær voru atvinnulausar og eftir það.“

Niðurstöður rannsóknarinnar undirstrika mikilvægi atvinnunnar í lífi þessara kvenna þar sem hún er í mörgum tilvikum aðaltengingin inn í samfélagið. Atvinnuleysið var þeim erfitt og vakti með þeim höfnunartilfinningu. Einnig voru vanvirkni, þyngdaraukning og félagsleg einangrun fylgifiskar þess. Í stað þess að sitja aðgerðarlausar heima fundu þær sig knúnar til að þiggja störf sem þeim þóttu annars óáhugaverð. Það helsta sem stóð í vegi fyrir því að þær gætu þróað áfram náms- og starfsferil sinn eftir komuna til landsins virðist hafa verið takmörkuð íslenskukunnátta. „Auðvitað höfðu persónuleiki og tengslanet þeirra líka áhrif á hversu vel þeim gekk að takast á við atvinnuleysið og afleiðingar þess,“ segir Elín.
Hún telur að bæta megi aðgengi innflytjenda að náms- og starfsráðgjöf hjá Vinnumálastofnun og gera úrræðin fjölbreyttari. Hún vonast til að niðurstöðurnar auki skilning á stöðu og reynslu kvenna af erlendum uppruna og nýtist við að móta þjónustu og úrræði fyrir innflytjendur.
Leiðbeinandi: Kristjana Stella Blöndal, lektor við Félags- og mannvísindadeild.