Sverrir Guðmundsson, M.Ed.-nemi við Menntavísindasvið
„Sól, sól, skín á mig,“ syngja krakkarnir á leikskólanum Björtuhlíð. Þeir láta sér hins vegar ekki nægja að syngja um sólina heldur læra einnig um hana og tunglið í gegnum vísindaleiki sem Sverrir Guðmundsson, meistaranemi í náms- og kennslufræði, hefur þróað í samstarfi við leikskólakennara á Björtuhlíð og Hauk Arason, dósent í eðlisfræði við Kennaradeild.
Sverrir hefur mikla reynslu af því að kenna stjörnufræði, bæði í framhaldsskóla, á ýmsum námskeiðum og ekki síst í Háskóla unga fólksins og Háskólalestinni á vegum Háskóla Íslands. Þá situr hann við skriftir á kennslubókum í eðlisfræði og stjörnufræði fyrir unglingastigið ásamt Hauki og Kjartani Erni Haraldssyni náttúrufræðikennara. „Haukur hafði verið með vísindaleiki um eðlisfræði á Björtuhlíð og vildi færa sig út í stjörnufræðina. Mig vantaði áhugavert meistaraverkefni svo að þetta var sannkölluð himnasending fyrir mig. Ég hafði enga reynslu af því að vinna með leikskólakennurum og svo ungum börnum þannig að þetta var mjög spennandi,“ segir Sverrir um upphaf verkefnisins.
Sverrir Guðmundsson
Sverrir hefur mikla reynslu af því að kenna stjörnufræði, bæði í framhaldsskóla, á ýmsum námskeiðum og ekki síst í Háskóla unga fólksins og Háskólalestinni á vegum Háskóla Íslands.

Sú skemmtilega staða er uppi að einn af leikskólakennurum Sverris starfar á Björtuhlíð. „Við tölum um að nú sé hringnum lokað því að nú er ég að kenna henni stjörnufræði en hún var kennarinn minn fyrir um aldarfjórðungi,“ segir Sverrir í léttum tón.
Hann segir vísindaleikina setta upp sem leiðbeiningar um það hvernig megi gera athuganir á hreyfingu sólar og tungls og hvað leikskólakennarar geta bent krökkunum sérstaklega á. Leikskólakennararnir á Björtuhlíð útfæra svo verkefnið og tengja meðal annars leikina við skapandi starf á leikskólanum. „Það kemur mér mjög á óvart hvað krakkarnir eru fljótir að læra og ná merkilega vel að skilja ýmis atriði sem tengjast stjörnufræði,“ segir Sverrir.
Námsefninu úr verkefni Sverris verður dreift á heimasíðu Björtuhlíðar og á Stjörnufræðivefnum en Sverrir er einn af umsjónarmönnum hans. „Það stendur einnig til að gefa öllum leikskólum á Íslandi jarðarbolta árið 2013. Það er stór, uppblásinn plastbolti með mynd af jörðinni. Þá verður gott að geta sent með efni sem tengist stjörnufræðikennslu á leikskóla,“ segir Sverrir að lokum.
Leiðbeinandi: Haukur Arason, dósent við Kennaradeild.