Hervör Alma Árnadóttir, lektor við Félagsráðgjafardeild og doktorsnemi við Menntavísindasvið
Offita er vaxandi lýðheilsuvandi í hinum vestræna heimi, þar á meðal á Íslandi. Hervör Alma Árnadóttir, lektor í félagsráðgjöf og doktorsnemi í menntavísindum, rannsakar félagslega færni ungmenna og áhrif offitu á félagslegan þroska.
Hervör Alma Árnadóttir
„Ég hef mikinn áhuga á að rannsaka hvað geti staðið í vegi fyrir því að börn og ungt fólk hafi jöfn tækifæri til þess að efla félagslega færni sína.“

Hervör hefur sinnt forvörnum og meðferðar- vinnu með unglingum um áraraðir, þar á meðal til að efla færni þeirra við að ná betri tökum á sjálfum sér og tilverunni. „Ég hef mikinn áhuga á að rannsaka hvað geti staðið í vegi fyrir því að börn og ungt fólk hafi jöfn tækifæri til þess að efla félagslega færni sína. Í því samhengi hef ég hug á að skoða hvort offita hefur áhrif á tækifæri ungmenna t.d. til að tilheyra vinahópi,“ segir Hervör.
Hervör hefur þegar skoðað þau rannsóknargögn sem snúa að félagslega þættinum. „Fyrstu niðurstöður benda til að tiltekinn hópur ungmenna upplifi sig ekki sem hluta af hópi og telji sig ekki eiga vísan félagslegan stuðning frá vinum. Svo virðist sem stúlkum finnist þær síður hafa þennan stuðning en drengir. Næsta skref er svo að taka offitu og holdafar inn í myndina,“ segir Hervör.
Rannsóknin er hluti langtímarannsóknar sem hófst árið 2003 undir forystu Erlings S. Jóhannssonar, prófessors við Menntavísindasvið. Niðurstöður þá sýndu að rúmlega 20% barna voru of þung. Veturinn 2011–2012 var gögnum safnað aftur frá sama fólki í því skyni að varpa ljósi á þær breytingar sem urðu á líkamlegu ástandi, félagslegri stöðu og líðan þessa unga fólks frá grunnskóla til fullorðinsára.
Hervör Alma telur mikilvægt að geta stuðst við rannsóknir sem þessar til að gera forvarnastarf sem markvissast. „Við erum alla ævina að þroska og þróa félagslega færni okkar, sem skiptir gríðarlega miklu máli í samtímanum. Með samskiptum lærum við að þekkja eigin þarfir og styðja aðra til þroska. Það er mikilvægt að skoða það vel ef ofþyngd eða offita dregur úr eða kemur í veg fyrir að við þróum þessa færni,“ segir hún.
Leiðbeinandi: Erlingur S. Jóhannsson, prófessor við Íþrótta-, tómstunda- og þroskaþjálfadeild.