Eyrún Eyþórsdóttir, doktorsnemi við Félags- og mannvísindadeild
„Ég tel að afdrif Íslendinganna sem settust að í Brasilíu og afkomenda þeirra séu hulinn hluti Íslandssögunnar. Brasilíufararnir hafa gleymst en þekking á sögu afkomenda Íslendinga í Kanada og Bandaríkjunum er hins vegar nokkuð almenn. Saga Brasilíufaranna og afkomenda þeirra er merkileg í marga staði og á skilið aukna umfjöllun og sýnileika,“ segir Eyrún Eyþórsdóttir, doktorsnemi í mannfræði.
Eyrún Eyþórsdóttir
Út frá hugmyndum fræðimanna um tvíheima og hnattvæddar sjálfsmyndir rannsakar Eyrún afkomendur tæplega 40 Íslendinga sem settust að í Brasilíu í lok 19. aldar.

Út frá hugmyndum fræðimanna um tvíheima og hnattvæddar sjálfsmyndir rannsakar Eyrún afkomendur tæplega 40 Íslendinga sem settust að í Brasilíu í lok 19. aldar. Hún segir hnattvædda íslenska sjálfsmynd á margan hátt áhugaverða og raunar sérstaklega athyglisverða meðal afkomenda Íslendinga í Brasilíu.
Á unglingsárunum bjó Eyrún tímabundið í suðurhluta Brasilíu og upplifði þar hversu mikilvægur uppruni fólks er í félagslegu samhengi. „Menningarleg fjölbreytni í Brasilíu er mikil og þar má meðal annars finna samfélag fólks af íslenskum uppruna sem lítið er vitað um. Þetta samfélag vakti áhuga minn og varð síðar kveikjan að rannsókninni,“ segir hún.
Eyrún segir frumniðurstöður m.a. benda til þess að íslensk sjálfsmynd fyrirfinnist meðal afkomenda Íslendinga í Brasilíu og að hún sé þeim mikilvæg. Birtingarmynd þessarar sjálfsmyndar sé til að mynda stolt yfir íslenskum uppruna. Hún telur að það gæti verið áhugavert að skoða hvort íslensk sjálfsmynd hafi á síðastliðnum árum fengið aukið vægi og ef svo er, hvað sé það sem valdi því.
„Rannsóknin er mikilvæg því hún eykur þekkingu á íslenskættuðum Brasilíumönnum. Sú þekking er bæði áhugaverð í skilningi vísindanna og fyrir almenna þjóðfélagsumræðu,“ segir Eyrún.
Leiðbeinandi: Kristín Loftsdóttir, prófessor við Félags- og mannvísindadeild.