Skip to main content

Margbreytileikinn fær skjól í gleðigöngunni

Jón Ingvar Kjaran, doktorsnemi við Uppeldis- og menntunarfræðideild, og Kristín Björnsdóttir, lektor við Félags- og mannvísindadeild

„Það hefur lítið verið skrifað um fötlunarfræði. Bæði hér og erlendis hefur líka lítið verið gert af því að tengja fötlunarfræðina við hinsegin fræði,“ segir Jón Ingvar Kjaran um kveikjuna að rannsókn sem hann vann ásamt Kristínu Björnsdóttur, lektor í fötlunarfræði, undir yfirskriftinni „Lokaskref í að vera alveg sama – Margröddun í gleðigöngunni“.

Jón Ingvar Kjaran 

Að sögn Jóns eru fötlunarfræði og hinsegin fræði að vissu leyti óskyldar greinar en samt ekki. Báðar fræðigreinarnar fjalli um jaðarhópa og noti mjög gagnrýnið sjónarhorn.

Jón Ingvar Kjaran

Rannsóknin snýst um að tengja saman fötlunarfræði og hinsegin fræði og er hluti af doktorsnámi Jóns á Menntavísindasviði. Rannsóknin er einnig sjálfstætt verkefni hans og Kristínar. Þau tóku viðtöl við fatlaða og hinsegin einstaklinga í tengslum við gleðigöngu hinsegin daga í ágúst í fyrra. Við rannsóknina tóku þau mið af kenningum rússneska fræðimannsins Mikhails Bakhtins um margröddun og karnivalið. Í þeim felst að sannleikurinn heyrist einungis með mörgum samhljóma röddum og að líta megi á karnivalið sem félagslega stofnun. „Við ákváðum að greina gleðigönguna út frá kenningum Bakhtins en einnig að nota kenningar hinsegin og fötlunarfræði,“ segir Jón. Að sögn Kristínar reyndu þau að finna samræmi á milli hinsegin fræði og fötlunarfræði annars vegar og kenninga Bakhtins hins vegar.

Að sögn Jóns eru fötlunarfræði og hinsegin fræði að vissu leyti óskyldar greinar en samt ekki. Báðar fræðigreinarnar fjalli um jaðarhópa og noti mjög gagnrýnið sjónarhorn.

Nú þegar liggja fyrir þrenns konar niðurstöður. Í fyrsta lagi er gleðigangan frelsandi fyrir báða hópa. Fötluðum líður vel í göngunni og þeir finna fyrir samstöðu, ekkert síður en hinsegin fólki. Í öðru lagi líta sumir á gönguna sem skrípaleik og bæði fjölmiðlar og samfélagið taka undir það. Í þriðja lagi skapar gleðigangan öruggt rými fyrir margbreytileikann.

Rannsóknin veitir innsýn í þetta lítt rannsakaða málefni ásamt því að vekja athygli á margbreytileika gleðigöngunnar: „Það eru fleiri en bara hinsegin einstaklingar sem taka þátt í henni. Þarna eru fatlaðir og jafnvel fatlaðir sem eru líka hinsegin,“ segir Jón að lokum.