Skip to main content

Kortleggur útbreiðslu lúpínu

Prashanth Marpu, nýdoktor við Rafmagns og tölvuverkfræðideild

„Við höfum þróað nýjar aðferðir til úrvinnslu stafrænna fjarkönnunarmynda sem við beitum við raunveruleg verkefni á Íslandi, eins og til dæmis til að kortleggja útbreiðslu lúpínu,“ segir Prashanth Marpu, nýdoktor við Rafmagns- og tölvuverkfræðideild.

Hann hefur unnið með Jóni Atla Benediktssyni, prófessor í rafmagns- og tölvuverkfræði og aðstoðarrektor vísinda og kennslu, að því að fylgjast með breytingum á yfirborði lands með fjarkönnun, þ.e. samanburði á gervitunglamyndum sem teknar eru á mismunandi tímum. Prashanth vinnur að þróun aðferða til að fylgjast með breytingum á íslensku landslagi sem eru bæði náttúrulegar og af mannanna völdum.

Prashanth Marpu

„Við höfum þróað nýjar aðferðir til úrvinnslu stafrænna fjarkönnunarmynda sem við beitum við raunveruleg verkefni á Íslandi, eins og til dæmis til að kortleggja útbreiðslu lúpínu“

Prashanth Marpu

Prashanth segir draum sinn hafa orðið að veruleika þegar hann fékk að vinna með Jóni Atla við Háskóla Íslands. Hann segir Jón Atla vera fremstan meðal jafningja á sviði úrvinnslu gagna sem aflað er með fjarkönnunarbúnaði. „Eftir að ég kom til Íslands varð mér ljóst að hér á landi getur fjarkönnun nýst mjög vel, til dæmis við að kortleggja landfræðilega dreifingu lúpínu en kortlagningin er unnin í samvinnu við Landmælingar Íslands.“

„Lúpínuverkefnið kemur til vegna ákvörðunar umhverfisráðuneytisins um að hefta útbreiðslu plöntunnar og fjarlægja hana af svæðum þar sem hún er ágeng og getur hugsanlega haft skaðleg áhrif á náttúrulegan gróður. Fyrsta skrefið í þessari vegferð er að kortleggja dreifingu lúpínunnar með fjarkönnun sem er eins og sniðin fyrir þetta verkefni. Á grundvelli upplýsinga úr fjarkönnuninni geta opinberir aðilar lagt til atlögu við lúpínuna á sem áhrifaríkastan hátt,“ segir Prashanth.