Sigrún Dögg Eddudóttir, doktorsnemi við Líf- og umhverfisvísindadeild
„Rannsóknin snýst um að tímasetja upphaf gróðurmyndunar og þróun gróðurs á fyrstu stigum gróðurframvindu eftir að jöklar ísaldar hörfuðu. Ég hyggst reyna að meta áhrif loftslags og eldvirkni á gróðurfarsþróun á nútíma, sem er tímabilið frá lokum síðasta jökulskeiðs, fyrir um það bil 11.000 árum, til okkar daga. Þá ætla ég að kanna hvort hægt sé að greina á milli umhverfisþátta og áhrifa
mannvistar eftir landnám á gróðurfarsþróun,“ segir Sigrún Dögg Eddudóttir, doktorsnemi í landfræði.
Sigrún Dögg Eddudóttir
„Rannsóknin snýst um að tímasetja upphaf gróðurmyndunar og þróun gróðurs á fyrstu stigum gróðurframvindu eftir að jöklar ísaldar hörfuðu.“

Sigrún Dögg fékk í haust styrk úr Háskólasjóði Eimskipafélags Íslands til þess að vinna að doktorsverkefni sínu þar sem hún rannsakar þróun jarðvegs og gróðurs í Húnavatnssýslum, frá Skaga í norðri til Blöndulóns í suðri. Tildrög þess að Sigrún Dögg ákvað að velja þetta verkefni eru áhugaverð. „Ég var í meistaranámi í Svíþjóð og verkefnið mitt þar fjallaði um gróðurfarsþróun í Norður-Tansaníu. Mér fannst það mjög spennandi viðfangsefni en langaði einnig að gera rannsóknir á Íslandi. Frjógreining, það er greining á frjókornum mismunandi plantna, er einstakt tæki til þess að skoða gróðurfar fyrr á tímum. Út frá niðurstöðum um gróðurfar og gróðurfarsbreytingar er síðan hægt að lesa mikilvægar upplýsingar um umhverfi og umhverfisbreytingar,“ segir hún enn fremur.
Sigrún Dögg bendir á að fáar rannsóknir hafi verið gerðar á gróðurfarsbreytingum á Íslandi sem ná yfir allt tímabilið frá lokum síðasta jökulskeiðs til okkar daga. „Verkefnið mun þannig stuðla að betri þekkingu á því hvernig vistkerfi á landi bregðast við loftslagsbreytingum, gjóskufalli frá eldfjöllum og landnotkun. Þessir drifkraftar eru enn í fullum gangi og verða að líkindum virkir áfram og verkefnið hefur því einnig beina skírskotun til nútíðar og framtíðar,“ segir Sigrún Dögg.
Leiðbeinandi: Guðrún Gísladóttir, prófessor við Líf- og umhverfisvísindadeild.