Skip to main content

Afrekskona á mörgum sviðum

Ásdís Hjálmsdóttir, spjótkastari og MS í lyfjafræði

Árið 2011 var viðburðaríkt hjá Ásdísi Hjálmsdóttur, afrekskonu í spjótkasti. Hún var ekki aðeins fyrst íslenskra íþróttamanna til þess að tryggja sér keppnisrétt á Ólympíuleikunum í Lundúnum og önnur í kjöri um íþróttamann ársins heldur lauk hún einnig meistaraprófi í lyfjafræði frá Háskóla Íslands. Ásdís hlaut 10 fyrir lokaverkefni sitt en slíkt er afar sjaldgæft.

Ásdís lauk meistaraprófi í lyfjafræði á tveimur og hálfu ári samhliða stífum æfingum og keppni í spjótkasti og segir aðspurð að furðuvel hafi gengið að samræma nám og íþróttaiðkunina. Hún eigi reyndar eftir að ljúka vinnuskyldu í náminu til þess að fá réttindi sem lyfjafræðingur „en ég ætla að reyna að fá einhverja smávegis vinnu í apóteki samhliða æfingum fyrir Ólympíuleikana til þess að safna upp í þá tíma sem upp á vantar.“

 Ásdís Hjálmsdóttir

Í meistaraverkefni sínu rannsakaði Ásdís áhrif lyfsins mísóprostóls. „Lyfið er notað til að stöðva blæðingar úr legi kvenna eftir fæðingu en slíkar blæðingar eru algengasta dánarorsök kvenna í kjölfar fæðinga.“

 Ásdís Hjálmsdóttir

Í meistaraverkefni sínu rannsakaði Ásdís áhrif lyfsins mísóprostóls. „Lyfið er notað til að stöðva blæðingar úr legi kvenna eftir fæðingu en slíkar blæðingar eru algengasta dánarorsök kvenna í kjölfar fæðinga. Gallinn er sá að lyfið var ekki þróað og framleitt við þessu og ekki er búið að rannsaka áhrif þess á legið nægilega vel. Það var í raun það sem ég var að gera. Ég komst að því að mísóprostól hefur ekki einungis örvandi áhrif á samdrætti í legi heldur hefur það fyrst slakandi áhrif í minni skömmtum og svo örvandi í stærri
skömmtum. Einnig hefur lyfið áhrif á blóðþrýsting,“ útskýrir Ásdís sem prófaði lyfið á þunguðum og óþunguðum rottum í rannsókninni.

Ásdís hefur ekki sagt skilið við lyfjarannsóknir því að hún stefnir á doktorsnám. „Það er þó ekki fyrr en næsta haust í fyrsta lagi og ég mun þá halda áfram með verkefnið mitt. Næsta skref væri að reyna að þróa bráðalyfjaform með mísóprostóli sem hægt er að nota í meðferð við blæðingum eftir fæðingu í vanþróuðum löndum. Ég og leiðbeinandinn minn erum þegar byrjuð að sækja um styrki vegna þess,“ segir Ásdís sem hefur augljóslega skýr markmið til framtíðar.

Leiðbeinendur: Sveinbjörn Gizurarson, prófessor við Lyfjafræðideild, Jón Ólafur Skarphéðinsson, prófessor við Hjúkrunarfræðideild, Sighvatur S. Árnason, dósent við Læknadeild, og Þór Eysteinsson, prófessor við Læknadeild.