Skip to main content

Auka verðmætasköpun í sjávarútvegi

Magnús Valgeir Gíslason og Sæmundur Elíasson, MS-nemar við Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild

Magnús Valgeir Gíslason og Sæmundur Elíasson, meistaranemar í vélaverkfræði, vinna að þróun sprautunála fyrir matvælaiðnaðinn í samvinnu við Matís ohf., sem er þekkingarfyrirtæki í nýsköpun í matvælaiðnaði og líftækni.

Magnús Valgeir segir hugmyndina að rannsókninni hafa kviknað í heimsókn þeirra í fiskvinnslu HB-Granda á Akranesi. Þar skoðuðu þeir allt ferlið við fiskvinnsluna og komu auga á leið til að gera hana samfelldari með því að bæta sprautubúnað sem er notaður til að sprauta saltpækli í fiskhold. „Þegar við skoðuðum allt vinnsluferlið var þetta það fyrsta sem við sáum að mætti bæta til að nýta hráefnið betur,“ segir Magnús Valgeir. Þeir báru hugmyndina undir Sigurjón Arason, dósent í Háskóla Íslands, sem er mikilsvirtur tengiliður atvinnulífsins og vísindasamfélagsins, „og þar sem honum leist vel á hugmyndina hófumst við handa,“ segir Sæmundur.

Magnús Valgeir Gíslason og Sæmundur Elíasson

Magnús og Sæmundur vinna að þróun sprautunála fyrir matvælaiðnaðinn í samvinnu við Matís ohf., sem er þekkingarfyrirtæki í nýsköpun í matvælaiðnaði og líftækni.

Magnús Valgeir Gíslason og Sæmundur Elíasson

Rannsóknin snýst um að ákvarða mótstöðukraft fiskholds mismunandi fisktegunda gagnvart nálum. „Við erum komnir með niðurstöður úr skerkraftsprófunum, hvert mótstöðuaflið er, og næsta skref er að fullhanna sprautunálarnar,“ segir Sæmundur. Hann segir frumhönnun nálanna lofa góðu en að erfitt sé að áætla hvenær þeim takist að ljúka hönnuninni að fullu. „Ef vel gengur vonumst við til að nálarnar verði tilbúnar í janúar eða febrúar 2012 og þær koma þá væntanlega á markað næsta sumar en þetta veltur allt á styrkjum til rannsóknarinnar,“ segir Magnús Valgeir. „Nýsköpunarsjóður námsmanna veitti okkur styrk til að mæla skerkraftinn og nú erum við að sækja um styrk til Tækniþróunarsjóðs til að geta lokið rannsókninni.“

Þeir eru ánægðir með rannsóknina. „Ávinningurinn af henni felst í betri nýtingu á afurðinni sem aftur eykur verðmætasköpun í sjávarútvegi. Í vísindasamfélaginu er rannsóknin okkar því mikilvægur liður í samfelldri þróun á tæknilausnum fyrir matvælaiðnað og stuðlar að öflugu þróunarstarfi á Íslandi,“ segir Sæmundur. „Góður árangur af rannsókninni er öðrum háskólanemum hvatning til að stíga fram með eigin hugmyndir og framkvæma þær,“ bætir Magnús Valgeir við að lokum.

Leiðbeinandi: Sigurjón Arason, dósent við Matvæla- og næringarfræðideild.

Sæmundur lauk meistaraprófi frá Háskóla Íslands árið 2012.