Skip to main content

Lífvirk efni flutt með örferjum

Kristberg Kristbergsson, prófessor við Matvæla- og næringarfræðideild

„Aukning á fæðutengdum sjúkdómum, eins og offitu og hjarta- og æðasjúkdómum, hefur valdið því að áhugi hefur aukist á að þróa matvæli sem innihalda lífvirk efni, t.d. ómega-3 fitusýrur í lýsi, lýkópen í tómötum og ýmis andoxunarefni, sem geta gagnast við að halda þessum sjúkdómum í skefjum,“ segir Kristberg Kristbergsson, prófessor við Matvæla- og næringarfræðideild.

Kristberg Kristbergsson

„Aukning á fæðutengdum sjúkdómum, eins og offitu og hjarta- og æðasjúkdómum, hefur valdið því að áhugi hefur aukist á að þróa matvæli sem innihalda lífvirk efni, t.d. ómega-3 fitusýrur í lýsi, lýkópen í tómötum og ýmis andoxunarefni, sem geta gagnast við að halda þessum sjúkdómum í skefjum.“

Kristberg Kristbergsson

Hann segir rannsóknir hafa sýnt að draga megi verulega úr fæðutengdum sjúkdómum með því að gera ákveðin lífvirk efni hluta af daglegri fæðu. Til þess þarf að einangra þau úr sínu upphaflega umhverfi og bæta þeim í nýjar fæðutegundir. „Mörg lífvirk efni eru mjög óstöðug og þola illa venjulega vinnslu og geymslu. Auk þess geta þau valdið vondri lykt og bragði. Þessi vandamál gera það að verkum að mun minna er notað af efnunum en æskilegt væri í almenn matvæli,“ bendir Kristberg á.

Hann hefur, í samstarfi við vísindamenn við erlenda háskóla, unnið að því að þróa aðferð til að verja lífvirku efnin og flytja þau á staði í líkamanum þar sem þau virka best. „Þetta er gert með því að þróa svokallaðar örferjur sem geta verið eins og litlir hnettir eða örkafbátar sem umlykja lífvirku efnin, flytja og verja,“ útskýrir Kristberg.

Örferjur með lífvirkum efnum má, að sögn Kristbergs, nota í tilbúin matvæli og markfæði, þ.e. fæðutegundir sem veita almenna næringu ásamt því að geta veitt vörn gegn ákveðnum sjúkdómum eins og hjarta- og æðasjúkdómum og offitu. „Örferjurnar eru gerðar úr efnum sem eru náttúruleg í fæðunni, til dæmis fitu. Örferjur með lífvirkum efnum verða prófaðar í mismunandi matvælum en einnig verða áhrif mismunandi vinnslu á öragnir og lífvirk efni könnuð og geymsluþol matvæla metið. Að lokum verður lífvirkni efnanna metin hjá neytendum,“ segir Kristberg um rannsóknirnar.