Rannveig Sigríður Ragnarsdóttir, MA frá Félagsráðgjafardeild
„Hugmyndin varð til þegar ég varð vitni að alvarlegu sjálfsvanrækslumáli í starfsþjálfun minni hjá Landspítalanum. Þar reyndi á ýmis álitamál þegar velja átti heppileg úrræði,“ segir Rannveig S. Ragnarsdóttir, um meistaraverkefni sitt en hún lauk meistaraprófi í félagsráðgjöf frá Háskóla Íslands í fyrrasumar.
Engar rannsóknir höfðu verið gerðar hérlendis á sjálfsvanrækslu eftir því sem hún vissi best og því taldi Rannveig þetta kjörið tækifæri til að auka og dýpka þekkingu á viðfangsefninu. Enga einhlíta skilgreiningu á sjálfsvanrækslu er að finna en birtingarmyndin er margþætt. Hún felst oftast í vanhirðu á líkama og umhverfi, vangetu til að sinna eigin grunnþörfum, félagslegri hlédrægni, söfnunaráráttu og synjun aðstoðar. „Ég vildi skoða þekkingu félagsráðgjafa, m.a. á einkennum og áhættuþáttum sjálfsvanrækslu og hvernig best væri að mæta einstaklingum sem vanrækja sig,“ segir Rannveig.
Rannveig Sigríður Ragnarsdóttir
„Hugmyndin varð til þegar ég varð vitni að alvarlegu sjálfsvanrækslumáli í starfsþjálfun minni hjá Landspítalanum. Þar reyndi á ýmis álitamál þegar velja átti heppileg úrræði.“

Niðurstöður sýndu að fáir viðmælendur voru kunnugir hugtakinu sjálfsvanræksla. Allir höfðu skoðun á því og höfðu orðið vitni að slíkum málum þótt þeir hefðu misjafna þekkingu á einkennum og áhættuþáttum. Einnig sýndu niðurstöðurnar fram á mikilvægi þess að horfa heildrænt á félagslega og læknisfræðilega þætti sjálfsvanrækslu en vegna þess hversu sterkt sjálfræði og sjálfsákvörðunarréttur einstaklinga er töldu viðmælendur sig lítið getað aðhafst í sjálfsvanrækslumálum. Þeim bar saman um rétt fólks til að hafna aðstoð svo framarlega sem því eða öðrum stæði ekki hætta af, en að mikilvægt væri að ræða við það um ástæður synjunar og afstöðu þess til þjónustunnar.
„Rannsóknin veitir innsýn í stöðu sjálfsvanrækslumála hér á landi, frá sjónarhorni félagsráðgjafa, auk mögulegrar íhlutunar. Jafnframt eykur hún vitund um slík mál og getur auðveldað skilning á aðstæðum þeirra sem vanrækja sig. Þörf er á aukinni fræðslu um sjálfsvanrækslu þar sem einkenni hennar geta verið mörg og afleiðingar alvarlegar,“ segir Rannveig enn fremur.
Leiðbeinandi: Sigurveig H. Sigurðardóttir, félagsráðgjafi og dósent við Félagsráðgjafardeild.