Skip to main content

Innbyggð sýklalyf gegn skæðri bakteríu

Guðmundur Hrafn Guðmundsson, prófessor við Líf- og umhverfisvísindadeild

Guðmundur Hrafn Guðmundsson, prófessor í frumulíffræði, hefur rannsakað bakteríudrepandi peptíð, sem eru lítil prótein sem laðast að bakteríum og drepa þær. „Þessi peptíð má kalla okkar innbyggðu sýklalyf, þ.e. einföld efni og fljótvirk sem eyða sýklum og halda bakteríum í hæfilegri fjarlægð frá okkar viðkvæmu vefjum,“ segir Guðmundur. Peptíðið finnst í öllum fjölfruma lífverum.

Guðmundur fann eitt þessara peptíða ásamt samstarfsaðilum í rannsóknarverkefni við háskólann í Stokkhólmi en það reyndist í miklu magni á öllu yfirborði vefja í þekjufrumum og átfrumum. „Þessar tvær frumugerðir eru einmitt lykilfrumur í upphafsvörnum okkar, þær eru í fremstu víglínu gegn ýmsum sýklum,“ bendir Guðmundur á.

Guðmundur Hrafn Guðmundsson

Rannsókn Guðmundar snýst um að greina ferla í frumum sem stýra kerfi peptíða, yfirborðsvarnarkerfinu svokallaða, þ.e. hvenær genið sem skráir fyrir peptíðið er í gangi, tjáð, og hvenær er slökkt á því.

Guðmundur Hrafn Guðmundsson

Rannsókn Guðmundar snýst um að greina ferla í frumum sem stýra kerfi peptíða, yfirborðsvarnarkerfinu svokallaða, þ.e. hvenær genið sem skráir fyrir peptíðið er í gangi, tjáð, og hvenær er slökkt á því. „Virk tjáning er grunnur öflugra yfirborðsvarna og til að hindra sýkingar. Við höfum sýnt nú þegar að með því að auka tjáningu bakteríudrepandi peptíða má hindra og lækna sýkingar,“ segir hann og bendir á að mjög lítið sé vitað um stjórnun kerfisins.

Eftir að hafa fengið vísbendingar um mikilvægi peptíða beindist athygli Guðmundar fljótt að skæðri bakteríu sem virtist slökkva á tjáningu peptíða. „Við spáðum því að þetta gerði bakteríunni kleift að ráðast inn í vefi og valda sýkingu. Bakterían byrjar í raun á því að gata varnarvegg, sem gerður er úr bakteríudrepandi peptíðum. Þetta hefur verið staðfest af öðrum rannsóknahópum. Þarna opnaðist ný spurning: hvað gerðist ef við kæmum í veg fyrir að bakterían slökkvi á kerfinu? Það kom í ljós að þannig mátti hindra sýkingar,“ útskýrir Guðmundur.

Með þekkingu á efninu verður hugsanlega hægt að koma í veg fyrir sýkingu með því að efla meðfæddar varnir. Það myndi stuðla að betri heilsu, minnka líkur á að ónæmi þróist hjá örverustofnum og draga úr notkun fúkkalyfja.