Henry Alexander Henrysson, verkefnisstjóri hjá Heimspekistofnun
Efling kennslu í gagnrýnni hugsun og siðfræði er samvinnuverkefni milli Rannsóknastofu um háskólana, Siðfræðistofnunar og Heimspekistofnunar. Páll Skúlason er upphafsmaður verkefnisins en hann hefur lengi bent á mikilvægi þess að kennsla í gagnrýninni hugsun verði hluti af skólagöngu hér á landi. Henry Alexander Henrysson leiðir verkefnið en hann er verkefnisstjóri og starfar á Heimspekistofnun.
Henry Alexander Henrysson
Kveikjan að verkefninu er umræðan um að efla þurfi kennslu í gagnrýninni hugsun hér á landi sem skapaðist eftir efnahagshrunið árið 2008.

Kveikjan að verkefninu er umræðan um að efla þurfi kennslu í gagnrýninni hugsun hér á landi sem skapaðist eftir efnahagshrunið árið 2008. Að sögn Henrys er verkefnið í raun svar við þeirri gagnrýni sem beindist að skólakerfinu um að kennslu í gagnrýninni hugsun og siðfræði í skólum landsins væri ábótavant. ,,Krafan kom meðal annars fram í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis,“ bætti Henry við.
Það má segja að verkefnið skiptist í þrjá meginþætti. Fyrst og fremst snýst það um að koma siðfræði og gagnrýninni hugsun inn í aðalnámskrá á öllum skólastigum. Henry segir að fyrir utan að kenna siðfræði og gagnrýna hugsun sem sérstakt fag sé ekki síður mikilvægt að gagnrýnin hugsun sé fléttuð inn í allar námsgreinar. Annar þáttur verkefnisins er að setja á fót nám fyrir kennara sem vilja efla hæfni sína í gagnrýninni hugsun til að nota í kennslu, nokkurs konar endurmenntun. Þriðji þáttur verkefnisins felst í að útbúa kennsluefni í siðfræði og gagnrýninni hugsun fyrir öll stig skólakerfisins.
,,Hugmyndin að verkefninu er sú að nemendur hafi raunverulega hæfni til að beita gagnrýninni hugsun og geti myndað sér sjálfstæðar og heildstæðar skoðanir þegar þeir koma í háskóla,“ sagði Henry þegar hann var spurður út í hugmyndina á bak við verkefnið. Að sögn Henrys er verkefnið komið ágætlega á veg, til að mynda er vinna hafin við að koma siðfræði og gagnrýninni hugsun að í aðalnámskrá og taka Henry og Páll þátt í því að skrifa þann kafla í aðalnámskrá grunnskóla sem fjallar um samfélagsgreinar.