Skip to main content

Gamlar hljóðupptökur gerðar aðgengilegar

Lára Magnúsardóttir, forstöðumaður Rannsóknaseturs HÍ á Norðurlandi vestra

Nýjasta rannsóknasetur Háskóla Íslands var opnað í apríl 2010 á Skagaströnd. Setrið er kennt við sagnfræði og þetta er eina rannsóknasetrið í íslensku háskólalífi sem er á því sviði. Þar fást menn m.a. við rannsóknir á sviði munnlegrar sögu og setrið stendur fyrir námskeiðahaldi og móttöku gestafræðimanna.

Lára Magnúsardóttir

„Í setrinu er unnið að því að setja upp bókasafn sem kennt er við Halldór Bjarnason sagnfræðing. Gert er ráð fyrir að bókasafnið verði tilbúið síðar á þessu ári en þar er vinnuaðstaða og rými til þess að taka á móti nemendahópum og halda ráðstefnur.“

Lára Magnúsardóttir

„Í setrinu er unnið að því að setja upp bókasafn sem kennt er við Halldór Bjarnason sagnfræðing,“ segir Lára Magnúsardóttir, forstöðumaður setursins. Gert er ráð fyrir að bókasafnið verði tilbúið síðar á þessu ári en þar er vinnuaðstaða og rými til þess að taka á móti nemendahópum og halda ráðstefnur.

Auk þeirra fræðistarfa sem Lára stundar í réttarsögu fóru tvö verkefni af stað á síðasta ári á vegum rannsóknasetursins. „Annað varðar menningu og ferðaþjónustu og er enn í startholunum. Hitt er tilraun til að skrá gamlar hljóðupptökur úr fórum Freðafélags Vestur-Húnvetninga í gagnagrunninn Ísmús. Þetta er samvinnuverkefni Tónlistarsafns Íslands og þjóðdeildar Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Verkið er unnið með heimamönnum og Miðstöð munnlegrar sögu, en markmið þess er að gera hljóðupptökur aðgengilegar á Netinu sem rafræn skjöl,“ segir Lára.

Hún bendir á að víða liggi gamlar hljóðupptökur undir skemmdum. Áhugi á þeim sé mikill en erfitt sé að vita hvað er til af þeim því að skráningu sé ábótavant. „Flestar heimasíður sem veita aðgang að hljóðupptökum klippa efnið og veita aðeins aðgang að völdum bútum. Hugmyndin er sú að koma til móts við fræðimenn og almenning sem hafa áhuga á að nýta hljóðupptökur á þann hátt sem þeim hugnast með því að skrá slíkar heimildir í gagnagrunn og veita rafrænan aðgang að þeim,“ segir Lára.