Skip to main content

Lærdómsríkar samræður ólíkra menningarheima

Susan Asio, nemi við Alþjóðlegan jafnréttisskóla

„Stríðsátök hafa ólík áhrif á karla og konur og segja má að þær konur sem sæta kynbundnu ofbeldi á átakatímum verði oft út undan þegar kemur að uppbyggingu samfélagsins,“ segir Susan Asio frá Úganda. Hún var einn sjö nemenda sem luku 20 vikna námskeiði við Alþjóðlegan jafnréttisskóla eða Gender Equality Studies and Training (GEST) Programme um áramótin 2011/2012. Skólinn er hugsaður fyrir nemendur frá þróunarríkjum og átakasvæðum. Um er að ræða þverfaglegt nám sem er rekið við Hugvísindasvið Háskóla Íslands í samstarfi við utanríkisráðuneytið.

Susan, sem er menntuð í félagsráðgjöf og stjórnsýslufræðum, hefur unnið í heimalandi sínu fyrir alþjóðlegu samtökin Isis-Women´s International Cross Cultural Exchange sem berjast fyrir réttindum kvenna á átaka- og uppbyggingarsvæðum. Í gegnum starfið bauðst henni að koma til náms við GEST.

Susan Asio

„Stríðsátök hafa ólík áhrif á karla og konur og segja má að þær konur sem sæta kynbundnu ofbeldi á átakatímum verði oft út undan þegar kemur að uppbyggingu samfélagsins.“

Susan Asio

Susan fjallaði í lokaverkefni sínu um það hvernig konur sem lifað hafa af kynbundið ofbeldi í stríðsátökum í Norður-Úganda geta komið að friðar- og samfélagsuppbyggingu. Rúmlega tveggja áratuga stríðsátökum í landinu lauk árið 2008. Eftir standa fjölmargar konur, sem m.a. var rænt til að stunda hermennsku eða sem var nauðgað, og glíma bæði við andlega og líkamlega kvilla, svo sem HIV-smit og sálræn áföll. Þessu hlutskipti þeirra hefur verið lítill gaumur gefinn, segir Susan, sem leggur til ýmsar leiðir í lokaverkefninu til þess að rétta hlut kvennanna og auka áhrif kvenna almennt á öllum stigum þjóðfélagsins í Úganda.

Susan segir að það hafi verið mikil upplifun að koma til Íslands og nema við GEST. „Ég lærði mikið af þeim samræðum sem ég átti við kennara og fólk frá ólíkum heimshornum og menningarheimum. Við nemarnir kynntumst ýmsum nýjum leiðum til þess að knýja á um aukið jafnrétti kynjanna í heimalöndum okkar,“ segir Susan, sem er ekki í vafa um að hún geti nýtt sér námið í störfum sínum í Úganda.