Þorvarður Árnason, forstöðumaður Rannsóknaseturs Háskóla Íslands á Hornafirði
„Rannsókn okkar hér á Höfn snýst um að kanna viðhorf erlendra ferðamanna til vetrarferðalaga um Ísland, sérstaklega þá um suðausturhluta landsins, Hornafjörð og Skaftárhrepp,“ segir Þorvarður Árnason, forstöðumaður Rannsóknaseturs Háskóla Íslands á Hornafirði. Rannsóknasetrið þar er eitt sjö slíkra á landsbyggðinni. Markmið þeirra er að skapa aðstöðu til rannsókna úti á landi, auka möguleika almennings til menntunar og styrkja tengsl háskólans við atvinnu- og þjóðlíf.
Á Höfn hafa um hríð farið fram rannsóknir sem tengjast ferðamennsku og er markmiðið með þeim að stuðla að eflingu greinarinnar, ekki síst á landsbyggðinni.
Þorvarður Árnason
„Rannsókn okkar hér á Höfn snýst um að kanna viðhorf erlendra ferðamanna til vetrarferðalaga um Ísland, sérstaklega þá um suðausturhluta landsins, Hornafjörð og Skaftárhrepp.“

Þorvarður segir að nú sé nýhafið markaðsátak hér á landi um eflingu vetrarferðaþjónustu undir heitinu Ísland – allt árið. „Það er afar mikilvægt fyrir alla slíka viðleitni að geta byggt á rannsóknum á borð við þær sem við stundum, annars er hætt við að markaðsstarfið verði ómarkvisst.“
Að sögn Þorvarðar er ferðaþjónustan ekki einungis ein helsta atvinnugrein þjóðarinnar, hún sé líka ákveðinn og vaxandi hluti tilverunnar, ekki síst úti á landsbyggðinni. „Það skiptir því miklu máli, bæði fyrir vísindin og samfélagið, að efla skilning okkar á ferðaþjónustunni.“
Þorvarður segir að ferðaþjónustan á Íslandi glími við mikla árstíðasveiflu og því hafi lengi verið rætt um að reyna að fjölga ferðamönnum utan háannarinnar á sumrin. Lítið hafi þó verið vitað um það hvaða augum ferðamenn líti Ísland á öðrum árstímum eða hvort þeir vildu yfirhöfuð koma til Íslands að vetrarlagi.
„Verkefnið er tvíþætt; fyrst voru tekin viðtöl við um 40 ferðamenn sumarið 2010 og síðan var útbúinn spurningalisti sem var lagður fyrir stærri hóp, eða um 1300 manns síðastliðið sumar,“ segir Þorvarður, sem er spenntur að vinna með gögnin til að leiða fram niðurstöður.
Hann segir að rannsóknin sé á lítt könnuðu sviði innan ferðamálafræða hér á landi og því spennandi fræðilega séð, „en jafnframt gætu niðurstöðurnar haft heilmikla hagnýta þýðingu fyrir ferðaþjónustuna í heild, ekki þó síst á Suðausturlandi þar sem hún blómstrar á sumrin en leggst síðan nánast algerlega í dvala á veturna.“